Úthlutun Tækniþróunarsjóðs í fyrirtækjastyrk Fræ og Þróunarfræ
30. júní 2026
Tilkynnt hefur verið um úthlutun úr Tækniþróunarsjóði Fræ og Þróunarfræ. Um er að ræða lotu tvö ársins 2026 og voru 15 verkefni styrkt.

Fræ veitir undirbúningsstyrki til ungra frumkvöðlafyrirtækja eða einstaklinga og er sniðinn að verkefnum á hugmyndastigi eða á frumstigi í þróun afurðar.
Fræ er opið fyrir umsóknir allt árið. Í lok sumars verður auglýst hvenær næsta matslota hefst og jafnframt tilkynnt um síðasta skiladag umsókna sem fara eiga í mat í þeirri lotu.
Heildarupphæð úthlutunar er 28,5 m.kr í þessari úthlutun.
Sjóðurinn heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
Eftirtalin verkefni fengu styrk:
Fræ:
Heiti verkefnis | Umsækjandi |
AgentOS | Hilmar Daníelsson |
CampCast – veðurdrifið ákvarðanatæki fyrir ferðamenn | Róbert Marvin Gíslason |
Dómstólaleit | Ásgeir Thor Johnson |
Handriti.is | Ragnar Þórarinn Ágústsson |
HILDA | Guðmundur Vignir Sigurðsson |
Hótelstjórinn — samþætt rekstrarkerfi fyrir íslensk hótel | Herborg Svana Hjelm |
Hughreysting | Guðrún Heimisdóttir |
IORDEN | Margeir Haraldsson Arndal |
NAERA: Vítamínbættur fatnaður | Guðbjörg Þóra Stefánsdóttir |
SafeBase – þjálfunar- og gæðakerfi fyrir matvælaframleiðslu | Jóna Sigríður Halldórsdóttir |
SolarGarri: Sólarknúinn cassavuvinnslumiðstöðvar, rekinn af konum, í dreifbýli Nígeríu | Conrad Innocent Chike Ochie |
Tengill Bio: Tæknilegri fýsileiki mótefnastýrðrar nálægðargreiningar | Qiong Wang |
Thales, hljóðfæri sem mótar hljóð með áþreifanlegum segulsviðum | Nicola Privato |
Þróunarfræ:
Heiti verkefnis | Umsækjandi |
Matstæki til að meta innlent eignarhald í þróunarsamvinnu | Guðrún Helga Diop Jóhannsdóttir |
Þróun og forkönnun rannsóknarkassa: Stafrænt rannsóknarumhverfi án nettengingar fyrir háskóla í láginnviðaumhverfi | Þóra Björnsdóttir |
* Listinn er birtur með fyrirvara um villur.