Upphafssfundur og tengslaráðstefna Uppbyggingarsjóðs EES haldinn í Varsjá Póllandi
28. apríl 2026
Upphafsfundurinn (e. Kick off) heppnaðist vel og var vel sóttur en um 100 þátttakendur mættu til fundarins. Þar komu saman sendiherrar, fulltrúar úr menningarlífi, aðstoðarmenningarráðherra Noregs auk fyrirlesara frá Noregi og Íslandi.

Meðal fyrirlesara var pólski rithöfundurinn Nina Witoszek, höfundur Norske naturmytologier, sem hefur búið í Noregi í fjóra áratugi. Hún flutti áhugaverða tölu um tengsl menningar og náttúru.
Einnig hélt Sverre Pedersen, fulltrúi Freemuse, samtaka sem berjast fyrir listrænu frelsi, erindi um mikilvægi tjáningarfrelsis í listum. Fyrir hönd Íslands flutti Friðrik sendiherra erindi þar sem hann fjallaði á skorinorðan hátt um áhrif íslensks menningararfs á samtímann, meðal annars á verk J.R.R. Tolkien.
Þá vakti einnig athygli erindi Sylwiu Zajkowska, pólskrar listakonu búsettrar á Íslandi, sem var fyrsta erlenda fjallkonan. Hún sagði frá lífi sínu og störfum hér á landi, þar sem hún hefur starfað að miklu leyti innan leiklistar.
Daginn eftir var haldin tengslaráðstefna þar sem tíu íslenskir þátttakendur frá öllum landshlutum tóku þátt, meðal annars frá Sviðslistasambandinu, danslistasambandinu, Rithöfundasambandinu og menningarstofnunum víða um land, svo sem í Borgarnesi, á Egilsstöðum og á Skriðuklaustri. Jafnframt voru á tengslaráðstefnunni um 40 Norðmenn og um 100 Pólverjar. Fundurinn fór fram í hinu nýja og glæsilega Sögusafni í Varsjá. Fundurinn gekk ágætlega og kynnt voru verkefni og möguleikar til samstarfs. Íslensku þátttakendurnir stóðu sig mjög vel og flestir náðu að mynda tengsl við pólsk fagfélög og samstarfsaðila.
Í framhaldi af ráðstefnunni var haldin móttaka í boði íslenska sendiráðsins í Varsjá.
Undirbúningur fyrir næsta umsóknatímabil er langt á veg kominn og stefnt er að því að auglýsa köll í byrjun júní.
Næsti fundur verður haldinn í lok september á svokallaðri „fundaviku“, þar sem meðal annars verður haldinn framkvæmdastjórafundur (PO-fundur) með um 40 þátttakendum frá löndum Uppbyggingarsjóðs með fjárframlög til menningarmála.
Nánari upplýsingar um þá dagskrá verða kynntar síðar.



