Uppbyggingarsjóður EES í Slóvakíu auglýsir menningarstyrki í samstarfi við íslenska aðila
4. júní 2026
Slóvakía hefur opnað fyrir umsóknir til stærri menningarverkefna í samstarfi íslenskra og norskra menningarstofnana. Umsóknarfrestur er til 5. ágúst 2026.

Auglýst er eftir samstarfs-umsóknum í menningaráætlun undir heitinu: Culture Driven Local Development.
Umsóknarfrestur er til 5. ágúst 2026 og er nú góður tími fyrir íslenska aðila að leita sér að samstarfsaðilum í Slóvakíu.
Slóvakískur aðili leiðir hvert verkefni og umsóknir eru lagðar fram í Slóvakíu. Skylt er að hafa samstarfsaðila frá einu af styrktarríkjunum, þ.e. Íslandi, Noregi eða Liechtenstein, sem skapar spennandi tækifæri fyrir íslenskar menningarstofnanir, sveitarfélög, félagasamtök og aðra aðila á sviði menningar og skapandi greina til að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi.
Rannís er samstarfsaðili Slóvakíu við framkvæmd áætlunarinnar Culture Driven Local Development, sem hefur það markmið að auka þátttöku, sjálfbærni og fjölbreytni á sviði lista, menningar og menningararfs.
Íslenskir aðilar sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefnum eru hvattir til að hefja leit að samstarfsaðilum sem fyrst og kynna sér skilmála kallsins nánar.