Ungu fólki boðið til samtals um vísindi og nýsköpun til framtíðar í íslensku samfélagi
21. september 2026
Fyrsta Vísinda- og nýsköpunarþingið verður haldið föstudaginn 25. september 2026, kl. 9:00, í Grósku.

Fyrsta Vísinda- og nýsköpunarþingið verður haldið föstudaginn 25. september 2026, kl. 9:00, í Grósku.
Vísinda- og nýsköpunarráð stendur að þinginu í samstarfi við forsætisráðuneytið, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið.
Á þinginu koma saman ungt fólk, fulltrúar vísindasamfélagsins, atvinnulífsins og stjórnvalda til að ræða hvernig þekking, vísindi og nýsköpun geta stuðlað að lausnum á áskorunum framtíðarinnar.
Þingið er öllum opið og aðgangur ókeypis.