Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

TRUNSPORT auglýsir kallið: Styrking netöryggisþols og nýsköpunar í samgöngugeiranum

10. september 2026

Markmið kallsins er að styðja við prófun og sannprófun á netöryggislausnum sem styrkja viðnámsþrótt evrópskra samgöngukerfa í flugi, á vegum, á járnbrautum og á sjó og siglingaleiðum, bæði í upplýsingatækniumhverfi (IT) og rekstrartækniumhverfi (OT).

Kallið beinist sérstaklega að aðilum sem falla undir gildissvið NIS2 sem mikilvægir eða nauðsynlegir aðilar. Verkefni þurfa að takast á við að minnsta kosti eina af þeim áskorunum sem tilgreindar eru í umsóknarleiðbeiningum, sýna mælanlegar umbætur út frá skilgreindri grunnlínu og tengjast einingum TRUNSPORT Cyber Support Hub (PSS, HSS eða MAS).

  • Styrkupphæð:

    Allt að 60.000 evrur á hvert verkefni, greitt sem föst fjárhæð (lump sum) og að hámarki 50% af heildarkostnaði. Heildarkostnaður verkefnis þarf því að vera að lágmarki 120.000 evrur til að fá fullt framlag. Alls verða 21 verkefni styrkt af heildarramma upp á 1.260.000 evrur. Greitt er í þremur hlutum: 30% í 1. mánuði, 30% í 4. mánuði og 40% við verklok (9. mánuð).

  • Umsóknarfrestur:

    30. október 2026 kl. 17:00 að Brussel-tíma. Umsóknir eru einungis sendar inn á F6S-vettvanginum og skulu vera á ensku.

  • Umsækjendur:

    Einn aðili eða samstarf tveggja eða fleiri aðila. Hæfir umsækjendur eru lítil og meðalstór fyrirtæki (SME), nýsköpunarfyrirtæki, stór fyrirtæki, rannsóknastofnanir, háskólar, félagasamtök og opinberir aðilar. Athugið að umsækjendur þurfa að starfa í samgöngugeiranum eða veita þjónustu sem tengist samgönguinnviðum með beinum hætti. Netöryggisfyrirtæki án slíkrar tengingar er því yfirleitt best sett í samstarfi við samgöngufyrirtæki sem leggur til notkunartilvik og aðgang að kerfum til prófunar. Hver aðili má aðeins taka þátt í einni umsókn. Ef sami aðili kemur að fleiri en einni umsókn verða allar umsóknirnar ógildar. Umsækjendur þurfa PIC-númer og þurfa að skila eignarhaldsyfirlýsingu (OCD).

  • Verkefnatími:

    9 mánuðir. Verkefni hefjast í janúar 2027 og ljúka í september 2027.

  • Annar stuðningur:

    Styrkþegar fá aðgang að Cyber Support Hub, tæknilega ráðgjöf frá TRUNSPORT-hópnum, NIS2-mat, þátttöku í netöryggisæfingum í KYPO Cyber Range og fræðslufundum. Styrkþegar þurfa jafnframt að taka þátt í Spotlight Demo Day í Þessalóníku undir lok verkefnisins.

Nánari upplýsingar um kallið.