Tilkynning vegna úrvinnslu umsókna um endurgreiðslu rannsóknar- og þróunarkostnaðar 2025
26. mars 2026
Úrvinnslu umsókna um endurgreiðslu rannsóknar- og þróunarkostnaðar skv. lögum nr. 152/2009 sem bárust á árinu 2025 er ekki lokið og biðst Rannís velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á þeirri umsýslu.

Staðfesting Rannís á rannsóknar- og þróunarverkefni er forsenda þess að geta sótt um framhald verkefnis 1. apríl.
Til að koma til móts við umsækjendur sem fá samþykkta umsókn eftir 1. apríl verður í kjölfar staðfestingar opnað á umsóknakerfið fyrir þá umsækjendur þannig að þeir geti skilað inn umsókn vegna ársins 2026 með umsóknarfresti til 1. október 2026. Til að auðvelda umsóknaskil verður hægt að hlaða inn upplýsingum vegna staðfestrar umsóknar frá árinu áður.
Ef spurningar vakna, vinsamlegast sendið póst á skattfradrattur@rannis.is