Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Þýðingarstyrkir Creative Europe til bókaútgefenda

17. október 2025

Umsóknarfrestur er til 29. janúar 2026. Um 40 verkefni eru styrkt og eru 5 milljónir evra til úthlutunar. Verk frá minni málsvæðum njóta forgangs til þýðinga.

Ár hvert eru styður Creative Europe þýðingar á um 500 bókmenntaverka, sem ná til nýrra lesenda í Evrópu og víðar. Bókaútgefendur þýða, dreifa og kynna bókmenntir frá um 40 tungumálum.

Bókaútgefendur geta sótt um einir og sér eða í félagi með öðrum útgefendum. Í umsóknum á verkefnið á að lýsa styrkri ritstjórnarstefnu, dreifingar- og kynningaráætlun. Umsókn felur í sér minnst 5 mismunandi bókmenntaverk frá rithöfundum þátttökulanda Creative Europe.

Hægt er að sækja um í þremur stærðarflokkum:

  • Minnst 5 verk þýdd – allt að 100.000 evrur

  • Minnst 11 verk þýdd – allt að 200.000 evrur

  • Minnst 21 verk þýdd – allt að 300.000 evrur. ATH. þessi flokkur er einungis fyrir a.m.k. tvo útgefendur í samstarfi.

Frétt á vef Creative Europe
Kallið í umsóknargátt
Kallið útskýrt (pdf)