Tækifæri í Tékklandi fyrir tvíhliða samstarfsverkefni
24. ágúst 2026
EES- sjóður fyrir borgaraleg samtök (EEA Civil Society Fund) hefur opnað kall fyrir tvíhliða verkefni í Tékklandi. Íslensk félagasamtök geta tekið þátt í þessum verkefnum með þarlendum samstarfsaðilum.

Frjáls félagasamtök á Íslandi eru hvött til að kynna sér þennan sjóð og nýta þá möguleika sem hann býður upp á en upphæð styrkja í þessu kalli eru frá 2 þúsund upp í 10 þúsund evrur.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð
EES-sjóðurinn er sérstakur sjóður innan Uppbyggingarsjóðs EES og Noregs 2021–2028 sem styður borgaraleg samtök og frjáls félagasamtök í 15 ESB-ríkjum. Ísland, Liechtenstein og Noregur fjármagna sjóðinn.
Meginmarkmiðin sjóðsins eru að:
styrkja lýðræði og réttarríkið
vernda og efla mannréttindi
styrkja borgaralegt samfélag, m.a. með því að efla getu og sjálfbærni félagasamtaka auka þátttöku almennings og samfélagsins í lýðræðislegu starfi.
Næstu mánuði verða auglýst ýmis verkefni á vegum sjóðsins í þessum 15 löndum
Búlgaría
Króatía
Kýpur
Tékkland
Eistland
Grikkland
Ungverjaland
Lettland
Litháen
Malta
Pólland
Portúgal
Rúmenía
Slóvakía
Slóvenía