Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Sjö kennarar hljóta gæðaviðurkenningu eTwinning 2026

19. október 2026

Sjö kennarar frá fimm skólum hljóta gæðaviðurkenningu eTwinning 2026 fyrir vel unnin alþjóðleg samstarfsverkefni. Verkefnin eru fjölbreytt og sýna hvernig eTwinning getur tengt saman nám, sköpun og samstarf nemenda yfir landamæri.

Sjö kennarar frá fimm íslenskum skólum hljóta National Quality Label, gæðaviðurkenningu eTwinning, árið 2026.

Gæðaviðurkenning eTwinning er veitt kennurum fyrir vel unnin eTwinning-verkefni og er viðurkenning á þeirri vinnu sem kennarar og nemendur hafa lagt til verkefnisins. Við mat á verkefnunum er meðal annars horft til samstarfs milli þátttökuskóla, notkunar tækni, kennslufræðilegra nálgana, samþættingar við námskrá og hvernig niðurstöður verkefnisins eru skráðar og þeim miðlað.

Gæðaviðurkenningu eTwinning 2026 hljóta:

  • Guðlaug Finnsdóttir, Vesturbæjarskóla, fyrir The Boat Game 2026

  • Guðbjörg Bjarnadóttir, Ingunnarskóla, fyrir The Boat Game 2026

  • Rósa Harðardóttir, Selásskóla, fyrir The Boat Game 2026

  • Sigrún Hrönn Ólafsdóttir, Selásskóla, fyrir The Boat Game 2026

  • Rósa Harðardóttir, Selásskóla, fyrir The European Chain Reaction 2026

  • Bylgja Dögg Sigurbjörnsdóttir, Reykjahlíðarskóla, fyrir Climate Justice for Change (CJ4C!)

  • Karólína Guðnadóttir, Selásskóla, fyrir ReAction

  • Marc Portal, Stóru-Vogaskóla, fyrir Erasmus the Traveller

Verkefnin í ár eru fjölbreytt og snerta meðal annars vísindi og tækni, umhverfis- og loftslagsmál, sjálfbærni og endurnýjanlega orku. Nemendur á ólíkum aldri hafa fengið tækifæri til að vinna með jafnöldrum sínum í öðrum löndum, prófa nýjar leiðir í námi og miðla vinnu sinni út fyrir eigin skóla.

Gæðaviðurkenning eTwinning er veitt kennurum sem hafa unnið vönduð alþjóðleg samstarfsverkefni með nemendum sínum. Verkefnin þurfa að byggja á sameiginlegum markmiðum og skipulögðu samstarfi milli skóla, þar sem nemendur eru virkir þátttakendur.

Við mat á verkefnunum er meðal annars horft til þess hvernig nemendur og kennarar vinna með samstarfsskólum, hvernig stafræn tækni er nýtt í verkefninu og hvernig verkefnið tengist námi og námskrá. Einnig er horft til kennslufræðilegra nálgana, afraksturs verkefnisins og þess hvernig vinnan og niðurstöðurnar eru skráðar og þeim miðlað.

Gæðaviðurkenningin er persónuleg viðurkenning kennarans fyrir framlag hans til verkefnisins. Fleiri en einn kennari getur því hlotið viðurkenningu fyrir sama verkefni.Við óskum kennurunum innilega til hamingju fyrir sitt framlag!