Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Síðasta matslota Tækniþróunarsjóðs í flokkum Fræ og Þróunarfræ

2. nóvember 2026

Mánudaginn 9. nóvember 2026 kl. 15:00 verður lokað fyrir umsóknir í styrktarflokkana Fræ og Þróunarfræ hjá Tækniþróunarsjóði. Um er að ræða síðustu matslotu ársins og jafnframt þá síðustu áður en Nýsköpunarsjóður tekur við um áramótin.

Fræ og Þróunarfræ hafa verið opin fyrir umsóknir allt árið um kring undanfarin ár og umsóknir teknar til mats með reglulegu millibili. Umsóknir sem berast fyrir lokafrestinn 9. nóvember fara í hefðbundið matsferli og er úthlutunar að vænta í byrjun desember.

Þann 1. janúar 2027 taka gildi ný lög um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun, nr. 54/2026, en samkvæmt þeim tekur Nýsköpunarsjóður við hlutverki Tækniþróunarsjóðs og Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Í tengslum við breytingarnar verður lokað fyrir nýjar umsóknir í Fræ og Þróunarfræ að loknum umsóknarfresti.

Upplýsingar um styrktarflokka og umsóknarfresti Nýsköpunarsjóðs verða birtar á vef Rannís þegar þær liggja fyrir.

Umsóknarfrestur: Mánudagurinn 9. nóvember 2026 kl. 15:00.

Umsóknum skal skila rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.