Pólsk-íslenskt samstarf í menningu, 17 námsheimsóknir styrktar
18. maí 2026
Uppbyggingarsjóður EEA Grants í Póllandi birti nýlega úthlutun tvíhliða styrkja til námsheimsókna á sviði menninga

Umsóknarfrestur rann út í febrúar síðastliðnum. Alls bárust 247 umsóknir og fengu 58 aðilar styrk. Þar af tengjast 17 verkefni pólsk-íslensku samstarfi, sem telst afar góð niðurstaða.
Námsheimsóknir af þessu tagi eru oft fyrsta skrefið í frekara alþjóðlegu samstarfi og geta orðið grunnur að stærri samstarfsverkefnum síðar meir. Auglýst verður eftir umsóknum um styrki fyrir stærri tvíhliða menningarverkefni í sumar, umsóknarfrestur verður í lok september. Skilyrði er að verkefni sé leitt af Pólverjum
Styrkirnir ná til 12 íslenskra stofnana og félaga sem taka þátt . Hlutfall verkefna með íslenskri þátttöku nemur um 30% af þeim námsheimsóknum sem hlutu brautargengi. Eftirtaldir íslenskir aðilar taka þátt í styrktum námsheimsóknum:
Moon – Austan mána ehf.
Harpa
Reykjavíkurborg – menningarskrifstofa
Snæfellsnes – Byggðasafn
Þjóðleikhúsið
Samfélag fyrir ÖLL
Reykjavíkurborg – fræðsluskrifstofa
Listaháskóli Íslands
Tangófélagið
Sagnheimar
Reykjavík Jazz Festival
Skógar
Niðurstöðurnar endurspegla öflugt samstarf Íslands og Póllands á sviði menningar og aukinn áhuga á alþjóðlegri samvinnu á meðal íslenskra menningarstofnana og skapandi greina.