Óskað eftir tilnefningum fyrir Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs 2027
3. nóvember 2026
Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Rannsóknasjóðs. Frestur til að skila inn tilnefningum er til 8. desember 2026.

Hvatningarverðlaunin eru veitt ungu vísindafólki sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi sem styrki stoðir mannlífs á Íslandi.
Tilnefnt vísindafólk skal almennt ekki vera eldra en 40 ára. Við mat á hæfi tilnefndra einstaklinga er tekið tillit til þess hvar þau eru stödd á starfsferli sínum og hversu langur tími er liðinn frá því að þau luku doktorsprófi.
Aðeins prófessorar, prófessorar emeritusar og dósentar hafa heimild til að tilnefna einstaklinga til verðlaunanna. Aðrir akademískir starfsmenn geta verið meðflutningsaðilar að tilnefningu.
Að lágmarki skulu þrír einstaklingar standa að hverri tilnefningu.
Hvatningarverðlaunin verða afhent á Rannsóknaþingi í janúar 2027.
Tilnefningum skal skilað í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís.
Frestur til að skila inn tilnefningum er til 8. desember 2026 klukkan 15:00 að íslenskum tíma.
Senda inn tilnefningu til Hvatningarverðlauna Rannsóknasjóðs 2027.
Vinsamlegast kynnið ykkur reglur verðlaunanna og leiðbeiningar fyrir þau sem standa að tilnefningum.