Opið kall CIRCAT til að efla netöryggi mikilvægra innviða
25. júní 2026
CIRCAT-verkefnið, sem styrkt er af Evrópusambandinu undir Digital Europe-áætluninni, hefur opnað fyrsta styrkjakall sitt til að efla netöryggi mikilvægra innviða í Evrópu.

Kallið beinist að þróun og skjalfestingu raunhæfra sviðsmynda fyrir öryggis- og innbrotsprófanir (penetration testing) og áhættumat.
Allt að 18 verkefni verða valin og fá auk styrks aðgang að sérfræðileiðsögn í mentoraprógrammi sem stendur í allt að sex mánuði.
Áhersla er lögð á netógnir sem beinast að mikilvægum innviðum á eftirfarandi sviðum:
Orka
Heilbrigðisþjónusta
Opinber stjórnsýsla
Stafrænir innviðir
Upplýsinga- og samskiptaþjónusta (B2B)
Fjármálainnviðir sem falla undir DORA-reglugerðina
Helstu upplýsingar um kallið:
Styrkupphæð:
Allt að 40.000 evrur (eingreiðsla/lump sum) á verkefni. Umsækjendur leggja fram að lágmarki 50% mótframlag og þarf heildarkostnaður verkefnis því að vera að minnsta kosti 80.000 evrur til að fá hámarksstyrk.
Umsóknarfrestur:
9. júlí 2026 kl. 13:00 að íslenskum tíma (15:00 CEST).
Gjaldgengir umsækjendur:
Einn aðili sækir um. Hæfir umsækjendur eru lítil og meðalstór fyrirtæki, meðalstór fyrirtæki, stór fyrirtæki, háskólar, rannsóknastofnanir og opinberir aðilar með staðfestu í aðildarríki ESB eða EES.
Nánari upplýsingar um kallið og umsóknarferlið má finna á vef CIRCAT.