Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Opið fyrir umsóknir um undirbúnings- og námsheimsóknir í Nordplus

25. ágúst 2026

Opið er fyrir umsóknir um styrki til undirbúningsheimsókna og námsheimsókna í Nordplus. Umsóknarfrestur er 1. október klukkan 21:59 að íslenskum tíma (23:59 CET).

Undirbúningsheimsóknir eru góð leið fyrir íslenska skóla, fræðsluaðila og aðrar stofnanir til að þróa hugmynd að norrænu eða norrænu-baltnesku samstarfsverkefni. Heimsóknirnar gera samstarfsaðilum kleift að hittast, útfæra verkefnið og undirbúa sameiginlega umsókn.

Hægt er að sækja um styrk til undirbúningsheimsókna innan:

  • Nordplus Junior, fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólastig

  • Nordplus Voksen, fyrir fullorðinsfræðslu

  • Nordplus Norrænu tungumálaáætlunarinnar

Innan Nordplus Junior er einnig hægt að sækja um styrk til námsheimsókna. Þær eru ætlaðar kennurum, skólastjórnendum, öðru starfsfólki skóla og starfsfólki fræðsluyfirvalda sem vilja afla nýrrar þekkingar og reynslu sem nýtist við þróun skólastarfs. Námsheimsókn þarf að byggja á skýrri þróunarþörf innan þátttökustofnunar.

Umsóknir

Umsóknum skal skilað rafrænt í Espresso-umsóknarkerfinu. Nýir umsækjendur þurfa að stofna aðgang en þeir sem þegar hafa aðgang geta skráð sig inn með núverandi notandaupplýsingum.

Umsóknarfrestur er 1. október 2026.

Umsækjendur á Íslandi geta haft samband við landskrifstofu Nordplus hjá Rannís til að fá frekari upplýsingar og aðstoð við umsókn.

Nánari upplýsingar um undirbúningsheimsóknir og námsheimsóknir er að finna á vef Nordplus.

Kynningarfundur 8. september

Rafrænn upplýsingafundur, Nordplus Café, verður haldinn 8. september kl. 12:00–13:00 að íslenskum tíma. Þar verður farið yfir styrkina, fyrstu skrefin við undirbúning samstarfsverkefnis og gerð umsóknar.

Fundurinn fer fram á ensku og þátttaka er ókeypis. Skrá þarf þátttöku í síðasta lagi 7. september.

Skráning og nánari upplýsingar um Nordplus Café