Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Opið fyrir umsóknir um ferðastyrki til listafólks - Culture Moves Europe

7. október 2026

Markmið styrkjanna er að styðja við alþjóðleg samskipti, þekkingaröflun og faglega þróun listafólks og annarra sem starfa á sviði menningar og skapandi greina. Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2027.

Culture Moves Europe er evrópskt styrktarverkefni sem veitir listafólki og starfsfólki í skapandi greinum styrki til náms- og rannsóknarferða innan Evrópu.

Hægt er að sækja um styrk á eftirfarandi sviðum

  • arkitektúr

  • menningararfur

  • hönnun

  • ritlist

  • tónlist

  • sviðslist

  • myndlist

Skilyrði

Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri og geta sótt um sem einstaklingar eða í hópi allt að fimm þátttakenda.

Einstaklingar geta sótt um 7–60 daga ferð. Ef allt að fimm manna hópur sækir saman um styrk getur ferðin staðið yfir í 1–3 vikur.

Ferðin þarf að vera farin til eins áfangastaðar og boð frá gestgjafa þarf að fylgja umsókn.

Styrkurinn nemur meðal annars

  • 85 evrum á dag

  • 400 evrum í ferðakostnað

Styrkurinn er ætlaður til að styðja við ferðina og þann tíma sem varið er í verkefnið hjá gestgjafa eða samstarfsaðila.

Umsókn og nánari upplýsingar

Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2027. Umsóknir eru metnar mánaðarlega fram að þeim tíma.

Nánari upplýsingar um umsóknarferlið má finna á vef framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins: Culture Moves Europe – Individual Mobility

Upplýsingar um kallið: Call for Individual Mobility 2026–2027 – PDF