Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Opið fyrir umsóknir til Listamannalauna 2026

6. ágúst 2025

Tilgangur listamannalauna er að efla listsköpun í landinu.

Upplýsingar fyrir umsækjendur (aðgengilegt á vef Listamannalauna)

  • Matskvarði umsókna

  • Áherslur stjórnar listamannalauna 2026-2028

  • Uppfærð reglugerð listamannalauna

  • Staðlaðir ákvörðunartextar umsókna

  • Leiðbeiningar um gerð umsókna og skýrslna

Samkvæmt lögum um listamannalaun eru til úthlutunar 1970 mánaðarlaun, 164,2 árslaun:

  • 75 mánuðir úr launasjóði hönnuða og arkitekta, 6,3 árslaun

  • 490 mánaðarlaun úr launasjóði myndlistarmanna, 40,8 árslaun

  • 600 mánaðarlaun úr launasjóði rithöfunda, 50 árslaun

  • 205 mánaðarlaun úr launasjóði sviðslistafólks, 17,1 árslaun

  • 195 mánaðarlaun úr launasjóði tónlistarflytjenda, 16,3 árslaun

  • 205 mánaðarlaun úr launasjóður tónskálda, 17,1 árslaun

  • 100 mánaðarlaun úr launasjóði kvikmyndahöfunda, 8,3 árslaun

  • 100 mánaðarlaun úr Vegsemd, 8,3 árslaun

Í umsóknum er óskað eftir:

  • Lýsingu á vinnu og tímaáætlun (70% vægi)

  • Ferli umsækjenda (30% vægi)

  • Ef umsókn fellur undir Vegsemd víxlast matsþættir

Nánar um um Vegsemd: Vegsemd er sjóður fyrir starfandi listamenn 67 ára og eldri, sem hafa varið starfsævi sinni til listsköpunar og skarað fram úr á sínu sviði. Ekki er sótt um í Vegsemd heldur geta umsóknir listamanna 67 ára og eldri í ofangreinda sjóði einnig fallið undir Vegsemd nema listamaður segi sig frá þeim valkosti. Við mat umsókna er vægi ferils 70%.

Umsóknir eru einstaklingsumsóknir og nota þarf rafræn skilríki við gerð þeirra.

Sviðslistahópar sækja um í launasjóð sviðslistafólks í gegnum umsókn Sviðslistasjóðs.

Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef áfangaskýrslu/lokaskýrslu hefur verið skilað sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009. Skýrslur eru á „mínum síðum“ umsækjanda.

Vefur listamannalauna

Fyrirspurnir: listamannalaun@rannis.is eða símar 515 5839 / 515 5838

Listamenn eru hvattir til að skila umsóknum tímanlega.

Opið er fyrir umsóknir til kl. 15:00, þann 1. október 2025.