Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Nýjum Erasmus+ samstarfsverkefnum fagnað á upphafsfundi

18. september 2026

Gleði ríkti á upphafsfundi nýrra samstarfsverkefna Erasmus+ sem haldinn var á Hótel Reykjavík Öskju 15. september. Í sumar úthlutaði Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi styrkjum til 22 nýrra verkefna á sviði menntunar og æskulýðsmála.

Á fundinum komu verkefnisstjórar þeirra saman ásamt starfsfólki Landskrifstofunnar til að marka upphaf verkefnatímabilsins.

Rúna Vigdís Guðmarsdóttir, forstöðukona Landskrifstofunnar, ávarpaði fundinn og fór yfir það sem helst er á döfinni í Erasmus+ á næstu misserum. Þar bar meðal annars á góma undirbúningur 40 ára afmælis Erasmus+ og næsta tímabil Evrópuáætlananna. Þrátt fyrir hógværar væntingar um aukið fjármagn í framtíðinni er ljóst að áhuginn á Erasmus+ heldur áfram að vaxa hratt. Það sást vel í umsóknalotunni í ár þegar 72 umsóknir bárust um samstarfsverkefni en aðeins 22 þeirra hlutu styrk.

Farið var yfir helstu atriði sem tengjast verkefnastjórnun, fjárhagsmálum, miðlun og sýnileika, auk þess sem styrkhafar fengu tækifæri til að kynnast hver öðrum og starfsfólki Landskrifstofunnar. Einn af hápunktum dagsins var erindi Kjartans Bollasonar frá Háskóla Íslands á Hólum sem deildi reynslu sinni af því að stýra Erasmus+ verkefni. Hann fjallaði bæði um tækifærin sem fylgja alþjóðlegu samstarfi og þær áskoranir sem geta komið upp á verkefnatímabilinu.

Nánari upplýsingar um styrkt verkefni má finna á yfirlitssíðu Erasmus+ um styrkúthlutanir. Einnig er rétt að minna á að enn er einn umsóknarfrestur eftir á árinu, þann 1. október, og snýr hann að verkefnum á sviði æskulýðsmála.

Myndirnar sem fylgja fréttinni voru teknar á fundinum og sýna hluta þeirra styrkhafa sem munu á næstunni vinna að því að hrinda Erasmus+ verkefnum í framkvæmd. Framundan er spennandi starf víðsvegar um landið og við óskum öllum styrkhöfum innilega til hamingju með árangurinn.

Styrkhafar í starfsmenntahluta: Kjartan Bollason fulltrúi Háskóla Íslands á Hólum og Lilja Gísladóttir fulltrúi Gámafélagsins ásamt starfsfólki Landskrifstofu: Rúnu forstöðukonu og Júlíönu verkefnisstjóra fjármála.

Styrkhafar í fullorðinsfræðslu: Kristín Elfa Ketilsdóttir og Kristín Erla Þráinsdóttir fulltrúar Mímis-símenntunar og Guðrún Björnsdóttir, Halla Vigdís Jóhannsdóttir og Soffía Bæringsdóttir fulltrúar Hönd í hönd ráðgjafar ásamt starfsfólki Landskrifstofu: Jóni Svani verkefnisstjóra fullorðinsfræðslu og skólahluta, Rúnu forstöðukonu og Júlíönu verkefnisstjóra fjármála.

Styrkhafar í leik-, grunn- og framhaldsskólahluta: Sigríður Pálsdóttir og Gísli Rúnar Gíslason fulltrúar Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri, Ásthildur B. Jónsdóttir fulltrúi Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, Þórunn Harðardóttir fulltrúi Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Vala Nönn Gautsdóttir fulltrúi Víkurskóla ásamt starfsfólki Landskrifstofu: Jóni Svani verkefnisstjóra fullorðinsfræðslu og skólahluta, Rúnu forstöðukonu og Júlíönu verkefnisstjóra fjármála.

Styrkhafar í háskólahluta: Guðrún Þóra Gunnarsdóttir og Vera Vilhjálmsdóttir fulltrúar Rannsóknamiðstöðvar ferðamála hjá Háskólanum á Akureyri og Jan Alexendar van Nahl fulltrúi Háskóla Íslands ásamt starfsfólki Landskrifstofu: Huldu verkefnisstjóra háskólahluta, Rúnu forstöðukonu og Júlíönu verkefnisstjóra fjármála.

Styrkhafar í æskulýðshluta: Hulda Valdís Valdimarsdóttir fulltrúi Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, Örvar Birkir Eiríksson fulltrúi Selaseturs Íslands og Helena María Agnarsdóttir, Helga Björg Arnardóttir og Þorkell Jóhann Steindal fulltrúar Sjónstöðvarinnar ásamt starfsfólki Landskrifstofu: Emblu verkefnisstjóra æskulýðshluta, Rúnu forstöðukonu og Júlíönu verkefnisstjóra fjármála.