Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Ný tækifæri fyrir lista- og menningarstofnanir í pólsk/íslensku samstarfi

14. ágúst 2026

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til menningarverkefna í Póllandi á vegum Uppbyggingarsjóðs EES. Íslenskar menningarstofnanir geta tekið þátt í verkefnum í samstarfi við pólska aðila og eru nú opin tvö styrkjasvið, annars vegar á sviði menningararfs og hins vegar menningar og lista. Um er að ræða umfangsmikla menningaráætlun og því fjölmörg tækifæri að koma á pólsk íslensku samstarfi.

Menning og listir – umsóknarfrestur til 10. nóvember

Fyrra styrkjasviðið snýr að menningu og listum og er umsóknarfrestur þar til 10. nóvember 2026. Megin markmiðið er að auka þátttöku almennings í fjölbreyttu lista- og menningarlífi, meðal annars með því að auka framboð menningarstarfs, bæta aðgengi og virkja nærsamfélög.

Samstarf við aðila frá gjafaríkjum er áskilið. Pólverjar leiða verkefnin en þau skulu unnin í samstarfi við aðila frá Íslandi, Noregi eða Liechtenstein.

Alls eru 3,5 milljónir evra til ráðstöfunar í þessari úthlutun og geta styrkir til einstakra verkefna numið frá 100 þúsund til 500 þúsund evrum. Að minnsta kosti 30% úthlutunar er ætlað verkefnum undir forystu félagasamtaka.

Verkefnin geta falist í menningar- og listastarfi sem eykur framboð og aðgengi að menningu og virkjar heimamenn til þátttöku. Kallað er eftir verkefnum sem efla fagmennsku innan menningargeirans og styðja við listafólk og starfsfólk, með sérstakri áherslu á ungt og upprennandi listafólk.

Áherslur sjóðsins: Verkefni nýti listir og menningu til að auka skilning á frelsi listrænnar tjáningar, efla menningarlega samræðu, vinna gegn rangfærslum og draga úr ójöfnuði. Verkefni vinni gegn félagslegri einangrun og vantrausti og stuðli að aukinni félagslegri samheldni.

Menningararfur – umsóknarfrestur til 31. desember

Hitt styrkjasviðið Menningararfur/Cultural heritage markmið þess er að blása nýju lífi í menningararf, tryggja sjálfbæra nýtingu og efla þátttöku nærsamfélaga.

Umsóknarfrestur er til 31. desember 2026 og er alls rúmlega 64 milljónum evra varið til verkefna í þessari úthlutun. Hægt er að sækja um styrki frá einni milljón til 3,5 milljóna evra fyrir hvert verkefni.

Verkefnin geta snúið að varðveislu, endurgerð og nýrri nýtingu menningararfs. Áhersla er lögð á óáþreifanlegan menningararf eins og t.d. eldri hefðir, þekkingu, verklag, færni og handverk.

Verkefni auki aðgengi að menningararfi og tengi hann betur við nærsamfélagið.

Pólverjar leiða verkefnisumsókn en verkefnin geta skapað fjölbreytt tækifæri til samstarfs við íslenska menningar- og fagaðila.

Tækifæri til að finna samstarfsaðila

Samstarf milli íslenskra og pólskra aðila hefur verið mikilvægur þáttur í menningarverkefnum Uppbyggingarsjóðs EES og ný áætlun skapar tækifæri til að byggja áfram á þeim tengslum.

Pólskir aðilar sem leita að íslenskum samstarfsaðilum geta meðal annars haft samband við Rannís. Íslenskar menningarstofnanir og aðrir aðilar sem hafa áhuga á samstarfi í Póllandi geta sömuleiðis leitað til Rannís eftir upplýsingum og aðstoð við að koma á samstarfi.

Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér köllin tímanlega og hefja samtal við mögulega samstarfsaðila. Fyrri verkefni Uppbyggingarsjóðs EES geta jafnframt gefið góða mynd af þeim fjölbreyttu verkefnum sem hafa verið styrkt á menningarsviðinu til þessa.

Umsóknarfrestir:

  • Menning og listir: 10. nóvember 2026

  • Menningararfur: 31. desember 2026

Nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð EES og samstarfstækifæri má finna á vef EEA and Norway Grants.