Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

NordForsk auglýsir kall um norrænar og baltneskar lausnir á sviði fæðuöryggis

1. september 2026

Íslenskar stofnanir og fyrirtæki geta tekið þátt í verkefnum og íslenskar rannsóknarstofnanir geta leitt umsóknir.

Markmiðið er að styðja rannsóknar- og nýsköpunarverkefni sem efla viðnámsþrótt matvælakerfa á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum. Verkefni skulu fjalla um viðbúnað og viðbrögð við áföllum, viðnámsþrótt mikilvægra innviða og/eða hvernig auka megi eftirspurn eftir matvælum sem framleidd eru á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum.

Íslenskar stofnanir og fyrirtæki geta tekið þátt í verkefnum og íslenskar rannsóknarstofnanir geta leitt umsóknir.

Umsóknarfrestur rennur út 2. desember 2026 klukkan 12:00 að íslenskum tíma (13:00 CET).

Nánar á vef NordForsk: Call for proposals: Nordic and Baltic solutions on food security