Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Níu halda til Bretlands í framhaldsnám með UK Iceland Explorer styrk

24. júní 2026

Námsstyrkir úr UK Iceland Explorer sjóðnum voru veittir 22. júní síðastliðinn við hátíðlega athöfn í breska sendiherrabústaðnum. Um var að ræða fimmtu og jafnframt síðustu úthlutun sjóðsins, sem hefur á undanförnum árum skapað dýrmæt tækifæri til náms og samstarfs milli Íslands og Bretlands.

Á myndinni má sjá styrkhafa ársins 2026 taka við styrknum við breska sendiherrabústaðinn ásamt Dr. Bryony Mathew sendiherra Bretlands, aðstandendum og starfsfólki Rannís.

Alls hlutu níu nemendur styrk að upphæð £10.000 hver. Styrkhafar ársins 2026 eru:

  • Jóhannes Reykdal Einarsson,

  • Guðrún Lilja Pálsdóttir,

  • Haukur Þór Þorvarðarsson,

  • Hrafnhildur María Marteinsdóttir,

  • Inga Huld Ármann,

  • Rebekka Rán Figueras Eiríksdóttir,

  • Hlynur Guðmundsson,

  • Selma Jóhannesdóttir,

  • Hlöðver Skúli Hákonarson

Þau munu stunda meistara- og doktorsnám við University of Oxford, Imperial College London, Queen Mary University of London og Brunel University, á fjölbreyttum sviðum á borð við heilbrigðisverkfræði, hagnýta stærðfræði, gervigreind og sálfræði.

Í ávarpi sínu við athöfnina lagði Dr. Bryony Mathew, sendiherra Bretlands á Íslandi, áherslu á mikilvægi þess að nýta námstækifæri erlendis til að efla þekkingu og færni og til að byggja upp öflugt tengslanet milli landanna tveggja. Hún lýsti jafnframt yfir ánægju með hvernig sjóðurinn hefur vaxið milli ára og opnað fjölmargar dyr fyrir metnaðarfullan hóp íslenskra nemenda til náms á sviðum sem skipta samfélagið máli við marga af fremstu háskóla Bretlands.

Styrkirnir eru veittir af Geimferðastofnun Bretlands (UK Space Agency) í samstarfi við Rannís, breska sendiráðið í Reykjavík og íslensk stjórnvöld. Samstarfsaðilar eru sammála um að sjóðurinn hafi náð markmiðum sínum um aukin áhuga á námi í Bretlandi og styrkt tengsl Íslands og Bretlands á mikilvægum fræðasviðum, sem endurspeglast meðal annars í miklum fjölda umsókna á þessu síðasta ári sjóðsins. Þessi tímamót koma á sama tíma og Bretland gengur aftur inn í Erasmus+ menntaáætlunina, sem opnar ný tækifæri fyrir nemendur og starfsfólk háskóla hérlendis til skiptináms, gestakennslu og annars samstarfs við breska háskóla. Sjá nánari upplýsingar í frétt Landskrifstofu Erasmus+.

Rannís óskar styrkhöfunum innilega til hamingju og þakkar breska sendiráðinu, UK Space Agency og menningar-, nýsköpunar-og háskólaráðuneyti kærlega fyrir farsælt og gott samstarf á liðnum árum.