Mikil samkeppni um Erasmus+ styrki til samstarfsverkefna í ár
29. júní 2026
Landskrifstofu bárust alls 72 umsóknir um KA2 samstarfsverkefni í umsóknarfrestinum þann 5. mars. Umsækjendur voru afar fjölbreyttir og komu víða að – allt frá tónlistarskólum til félagasamtaka og allra skólastiga þar á milli. Verkefnin fjalla um mikilvæg málefni sem falla vel að markmiðum Erasmus+.

Um harða samkeppni var að ræða í ár, enda einkenndust umsóknirnar af vönduðum fyrirætlunum sem sýndu fram á sterka tengingu við viðkomandi markhóp og stefnumál áætlunarinnar. Þá skipti miklu máli að sýna skýrt fram á hlutverk, ábyrgð og framlag samstarfsaðilanna, markvissar aðgerðir, skilvirkni og áhrif. Eftirspurn um styrki nær langt umfram framboð styrkja því sótt var um 14 milljónir evra en til úthlutunar í ár voru rúmar 3,5 milljónir evra. Samtals voru 22 umsóknir samþykktar sem hljóta tæplega 3,3 milljónir evra í styrk. Einn umsóknarfrestur um samstarfsverkefni er eftir á árinu, en hann nær einungis til smærri verkefna í æskulýðshluta.
Í fyrsta sinn var einnig opnað fyrir umsóknir í nýjum verkefnaflokki um samstarfsverkefni um skólaþróun, með umsóknarfrest 19. apríl. Markmið verkefnaflokksins er að bæta starfshætti, stefnumótun og verklag í skólum og hjá skólayfirvöldum, með sérstakri áherslu á áhrif og eftirfylgni að loknu styrktímabilinu. Ein umsókn var samþykkt í þessum flokki og hlýtur hún 400.000 evrur í styrk.
Næst á dagskrá er að ganga frá samningum við styrkþega. Verkefnin munu hefjast með haustinu og starfsfólk Landskrifstofu hlakkar til að taka á móti þeim sem leiða verkefnin á upphafsfundi, fara yfir reglur og samninga og kynnast þessum metnaðarfullu og spennandi verkefnum betur.
Landskrifstofa Erasmus+ óskar öllum styrkþegum innilega til hamingju.