Menningarfulltrúar Uppbyggingarsjóðs EES funduðu í Reykjavík
7. október 2026
Rannís/Uppbyggingarsjóður EES og utanríkisráðuneytið hélt fund menningarfulltrúa frá sex viðtökuríkjum sjóðsins í Þjóðminjasafninu í lok september síðastliðinn.

Menningarfulltrúar sem sátu fundinn ásamt fulltrúum Rannís
Gestirnir 40 komu frá Póllandi, Portúgal, Rúmeníu, Búlgaríu, Slóvakíu og Tékklandi og Noregi. Dagskráin var þétt og góðir gestir komu frá Þjóðminjasafni, Minjastofnun, Rannsóknasetri skapandi greina og héldu áhugaverða fyrirlestra fyrir hópinn.
Öll þess ríki standa fyrir menningarstyrkjum og bjóða íslenska þátttakendur á menningarsviðinu velkomna til samstarfs.
Auglýst hefur verið nú þegar eftir umsóknum i Slóvakíu og Póllandi: Culture | EEA and Norway Grants Poland
Menningarsjóðir viðtökulanda skiptast að jafnaði í menningararfsstyrki (outcome 1) og listir og skapandi greinar (outcome 2)
Mikil áhersla er á að fá dreifðari byggðir til að taka þátt í samstarfsverkefnum. Í outcome 2 er skilyrði að um tvhliða verkefni sé að ræða, þ.e. að Noregur, Ísland eða Liechtenstein taki þátt.
Nánari upplýsingar:
Vefur Uppbyggingarsjóðs EES: eeagrants.org
Tengiliður Uppbyggingarsjóðs, menningarstyrkir er Auður Rán Þorgeirsdóttir




