Listasafn Íslands hlýtur veglegan styrk frá Creative Europe, menningaráætlun ESB
15. maí 2026
Styrkurinn er veittur til verkefnisins CUSP: Creative Understanding, Saving and Preserving Time Based Media Art.

Markmið verkefnisins er að efla þekkingu og kunnáttu í varðveislu og uppsetningu tímatengdrar myndlistar, en með því er átt við list sem hefur tíma sem eiginleika (eins og litur og lögun í málverki eða skúlptúr) svo sem vídeóverk, hljóðverk, stafræn verk og gjörninga.
Stofnanirnar sem taka þátt í verkefninu, auk Listasafnsins eru Nasjonal Museet í Noregi, LiMa í Hollandi, Vasulka Kitchen í Tékklandi og Mystetskyi Art Arsenal í Úkraínu ásamt samstarfsaðilunum Vasulka Foundation, Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands.
Verkefnið spannar heildarferli tímatengdra myndlistarverka, frá sköpun til langtíma varðveislu, og skiptist í nokkra þætti; listamannaresidensíur, rannsóknir á listasögu og miðlasögu, neyðarviðbrögð og varðveislu verka í hættu, vistvænar varðveisluaðferðir og eflingu þekkingar og rannsókna á sviðinu.
Verkefnið er stutt af menningaráætlun Evópusambandsins en heildarupphæð styrksins er ein milljón Evra (tæplega 150 milljónir ISK) og er tímaramminn þrjú ár.