Leitarðu að pólskum samstarfsaðila í rannsókna- og nýsköpunarverkefni?
5. október 2026
POLNORIS kall í hagnýtri rannsókna- og nýsköpunaráætlun er opið fyrir umsóknir. Heildarfjármagn sem veitt verður úr POLNORIS eru 70 milljónir evra, en hvert styrkt verkefni hlýtur á bilinu 1-1.75 milljónir evra með það að markmiði að efla gæði rannsókna í Póllandi og styrkja alþjóðlegt samstarf á sviði hagnýtra rannsókna og nýsköpunar.

Veittir verða styrkir til hagnýtra rannsókna- og nýsköpunarverkefna sem unnin eru í samstarfi pólskra aðila og verkefnaaðila frá styrktarríkjunum, þar á meðal Íslandi.
Kallið er opið öllum vísindagreinum, að því gefnu að verkefnin stuðli að að minnsta kosti einu af forgangssviðum Uppbyggingarsjóðs EES:
grænum umskiptum í Evrópu
lýðræði, réttarríki og mannréttindum
félagslegri þátttöku og seiglu samfélaga
Skilyrði er að að minnsta kosti einn aðili frá Íslandi, Liechtenstein eða Noregi taki þátt í verkefninu.
Umsóknarfrestur er til og með 17. desember 2026 (15:00 CEST).
Íslensk fyrirtæki, stofnanir og háskólar sem leita að samstarfsaðilum vegna verkefna innan Uppbyggingarsjóðs EES í hagnýtri rannsókna- og nýsköpunaráætlun Póllands geta nýtt sér sérstakan pólskan gagnagrunn fyrir leit að samstarfsaðilum.
Í gagnagrunninum er hægt að skrá eigin verkefnishugmynd og óska eftir samstarfsaðilum eða skoða hugmyndir sem hafa borist. Hægt er að leita eftir mismunandi sviðum svo sem hagnýtum rannsóknum, nýsköpunarverkefnum og almennu þekkingarsamstarfi á breiðum grunni.
Gagnagrunnurinn getur því verið góður upphafspunktur fyrir íslenska aðila sem vilja mynda tengsl við pólskar stofnanir, háskóla og fyrirtæki, og þróa samstarfsverkefni.