Leitarðu að pólskum samstarfsaðila í menningarverkefni?
14. september 2026
Íslenskir menningaraðilar sem leita að samstarfsaðilum í Póllandi vegna verkefna innan Uppbyggingarsjóðs EES geta nýtt sér sérstakan pólskan gagnagrunn fyrir leit að samstarfsaðilum.

Í gagnagrunninum er hægt að skrá eigin verkefnishugmynd og óska eftir samstarfsaðilum eða skoða hugmyndir sem hafa borist. Hægt er að leita eftir mismunandi sviðum menningar, svo sem leiklist, myndlist, tónlist, bókmenntum og menningararfi.
Gagnagrunnurinn getur því verið góður upphafspunktur fyrir íslenska aðila sem vilja mynda tengsl við pólskar stofnanir og þróa sameiginleg menningarverkefni.