Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Íslenskt fyrirtæki hlýtur styrk til að efla netöryggi í orkukerfum á Norðurlöndum

23. mars 2026

Íslenska fyrirtækið Defend Iceland hlaut nýverið styrk frá Innovation Norway, Rannsóknaráði Noregs (Norges forskningsråd) og Norsku þjóðaröryggisstofnuninni (Nasjonal sikkerhetsmyndighet) fyrir verkefnið Defend the Grid. Verkefnið er eitt af þeim sem hljóta stuðning til að efla netöryggi í raforkugeiranum.

Verkefnið er hluti af CRESCENDO, evrópsku samstarfsverkefni sem fjármagnað er af Digital Europe áætlun Evrópusambandsins, sem Rannís umsýslar, og miðar að því að styrkja viðbúnað og seiglu netöryggis í orkukerfum á Norðurlöndum.

Markmið verkefnisins er að þróa áfram lausnir sem styðja við aukið öryggi mikilvægra innviða með því að gera öryggisprófanir aðgengilegri, sérstaklega fyrir minni raforkuframleiðendur. Lausnin byggir á þátttöku notenda og miðar að því að efla viðnámsþrótt orkukerfa á svæðinu.

Styrkurinn gerir Defend Iceland kleift að þróa vettvang sinn frekar og útvíkka notkun hans til orkuframleiðenda víðs vegar um Norðurlönd. Verkefnið er jafnframt liður í vaxandi starfsemi fyrirtækisins á svæðinu, meðal annars í samstarfi við aðila í Danmörku.

Úthlutunin er viðurkenning á íslenskri nýsköpun og þeirri nálgun sem fyrirtækið hefur þróað á sviði netöryggis. Alls hlutu sjö fyrirtæki styrk í þessari úthlutun og munu verkefnin styðja við aukið öryggi í raforkugeiranum.

Áhugasamir aðilar eru hvattir til að fylgjast með framvindu CRESCENDO verkefnisins, en stefnt er að annarri úthlutun styrkja í janúar 2027 þar sem valin verða um 30 ný verkefni. Verkefnið leggur einnig áherslu á að byggja upp sterkt samstarfsnet og miðlun þekkingar milli þátttakenda.

Starfsfólk alþjóðateymis Rannís veitir þjónustu og ráðgjöf við aðila sem eru í styrkjaleit, samstarfsleit eða þarf tengingar.

Auglýsing Rannís um styrk Rannsóknaráðs Noregs