Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Hvatningarverðlaun Vísindavöku hlýtur Vaka Sif Tjörvadóttir

28. september 2026

Á Vísindavöku 2026, sem fram fór laugardaginn 26. september sl. voru einnig veitt sérstök hvatningarverðlaun, sem Vaka Sif Tjörvadóttir hlaut. Árlega veitir Rannís viðurkenningu fyrir vísindamiðlun við opnun Vísindavöku, sem er veitt einstaklingi, stofnun, skóla, fyrirtæki, samtökum eða verkefni, sem þykir hafa staðið ötullega að því að miðla vísindum og fræðum til almennings á áhugaverðan hátt.

Vaka Sif er 18 ára nemandi í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu. Sumarið 2026 tók hún að eigin frumkvæði af skarið og skipulagði „Vísindi í verki“ vikulanga rannsóknasmiðju fyrir börn á Höfn í Hornafirði. Hugmyndin kviknaði þegar Vaka tók eftir því að það var algjört gat í sumarnámskeiðum í júlí og hún sjálf án vinnu vegna þess. Hún sá því tækifæri til að bjóða börnum á svæðinu upp á fræðandi og skemmtilegt sumarnámskeið með það að markmiði að kynna þau fyrir vísindum.

Vaka skipulagði sjálf dagskrána, valdi og undirbjó tilraunir, meðal annars í efnafræði, líffræði og eðlisfræði, aflaði aðfanga og hélt sérstakt prufunámskeið fyrir námskeiðið þar sem hún prófaði tilraunirnar og útfærsluna. Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu lánaði henni aðstöðu og náttúrufræðibúnað og sveitarfélagið studdi við verkefnið og auglýsti námskeiðið. Vaka sá sjálf um skipulagningu, kynningu, skráningar og kennslu.

Áhuginn var slíkur, að tveir fullbókaðir hópar voru skipulagðir, annar fyrir yngri börn og hinn fyrir eldri. Á námskeiðinu fengu börnin að framkvæma tilraunir sjálf og Vaka lagði áherslu á að útskýra á aðgengilegan hátt hvers vegna þær virkuðu og tengja þannig leik og upplifun við vísindi. Viðbrögð barna og foreldra voru afar jákvæð. Eitt lítið, en lýsandi dæmi um áhrif verkefnisins, er sjö ára þátttakandi, sem hafði áður sagst ætla að verða leikkona þegar hún yrði stór, tilkynnti eftir námskeiðið að nú ætlaði hún að verða vísindakona!

Með framtaki sínu sýndi Vaka hvernig ein góð hugmynd, frumkvæði og áhugi á vísindum getur orðið að raunverulegu samfélagsverkefni. Hún gerði vísindi lifandi, aðgengileg og spennandi fyrir börn á landsbyggðinni og sýndi um leið öðrum ungmennum að þau þurfa ekki að bíða eftir því að verða „fullorðið vísindafólk“ til að miðla þekkingu, skapa verkefni og hafa áhrif.

Vaka lagði mikla vinnu, metnað og ábyrgð í að framkvæma hugmynd sína. Það er einstaklega verðlmætt að ung manneskja eins og Vaka taki sjálf frumkvæði að því að miðla áhuga sínum á vísindum áfram til barna í sínu nærsamfélagi.

Dómnefnd vísindamiðlunarverðlauna Rannís ákvað að veita Vöku sérstaka viðurkenningu fyrir framtak sitt, á Vísindavöku 2026, með von um að hún verði henni hvatning til að halda áfram að skapa, miðla og vekja áhuga annarra á vísindum.

Frumkvæði Vöku er einmitt það sem Vísindavaka stendur fyrir, að miðla vísindum, kveikja forvitni og tengja vísindi og fræði við almenning í landinu.

Nánari upplýsingar:
Davíð Fjölnir Ármannsson, kynningarstjóri Rannís, s. 660 2928, david.f.armannsson@rannis.is

Vaka Sif Tjörvadóttir s. 855 3101