Háskólasetur Vestfjarða hlýtur viðurkenningu fyrir vísindamiðlun á Vísindavöku 2026
26. september 2026
Viðurkenning Rannís fyrir vísindamiðlun var afhent við opnun Vísindavöku þann 26. september og hlaut Háskólasetur Vestfjarða viðurkenninguna að þessu sinni. Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðherra afhenti Catherine Chambers forstöðukonu setursins viðurkenninguna.

Háskólasetur Vestfjarða hefur um árabil miðlað vinnu og niðurstöðum nemenda og starfsfólks setursins á opinn, líflegan og áhugaverðan hátt. Háskólasetrið var stofnað 2005 með það að markmiði að efla Vestfirði og bjóða upp á staðbundið nám á háskólastigi, en undanfarin ár hafa rannsóknir verið sá þáttur starfseminnar sem hefur vaxið hvað mest. Mikilvægi staðbundinna rannsókna og alþjóðlegs vísindasamstarfs fyrir nærsamfélagið og miðlun rannsókna og vísinda er ótvírætt, og skapar verðmæti fyrir samfélagið með aukinni menntun og þekkingu.
Mikilvægt samstarf og öflug vísindamiðlun á Vestfjörðum
Háskólasetur Vestfjarða stendur fyrir öflugu samstarfi við skóla og menningarstofnanir á Vestfjörðum, þar sem vísindalegum aðferðum, rannsóknum og staðreyndum um hafið og lífríki þess hefur verið miðlað til barna og ungmenna. Hér má nefna verkefni eins og „Hafið okkar“ í Grunnskóla Bolungarvíkur, „Furðurverur í fjörunni – lista- og vísindasmiðja“ í samstarfi við Menningarmiðstöðina Edinborg á Ísafirði, og „Seagirls“ sem miðaði að því að fá innsýn í samband og skilning stúlkna á hafinu.
Setrið stóð einnig fyrir vísindaviðburðinum „Popp, kók og vísindi“ þar sem saman komu rannsakendur og vísindafólk víðs vegar að af Vestfjörðum í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði, þar sem boðið var upp á stuttar vísindakynningar á meðan gestir gæddu sér á poppi og gosi.
Loks má nefna að Háskólasetrið býður reglulega til opinna hádegisfyrirlestra undir heitinu „Vísindaportið“, þar sem nemendur, kennarar og rannsakendur segja frá rannsóknum sínum á léttan og aðgengilegan hátt.
Það er ljóst að Háskólasetur Vestfjarða gegnir lykilhlutverki í að leiða saman aðila sem stunda rannsóknir, ekki aðeins á Vestfjörðum, heldur stendur setrið fyrir öflugu alþjóðlegu samstarfi og tryggir að vísindastarfi sé miðlað á lifandi og áhugaverðan hátt til almennings, með áherslu á að fræða börn og ungmenni. Bein og lifandi vísindamiðlun til er einmitt eitt af markmiðum Vísindavökunnar og því hlaut Háskólasetur Vestfjarða viðurkenningu Rannís fyrir vísindamiðlun 2026.