Fulltrúar 49 verkefna fá styrk að andvirði 803 milljóna króna í vorúthlutun Tækniþróunarsjóðs
2. júní 2026
Stjórn Tækniþróunarsjóðs hefur samþykkt að bjóða fulltrúum 49 verkefna að ganga til samninga um nýja styrki í vorúthlutun sjóðsins 2026. Heildarfjárhæð styrkja til nýrra verkefna nemur 803 milljónum króna.

Alls bárust 373 umsóknir í styrktarflokkana og hafa 49 verkefni verið valin til samningaviðræðna um styrki. Árangurshlutfall styrktra verkefna miðað við fjölda umsókna er því 13%.
Fyrir vorúthlutun 2026 voru eftirtaldir styrktarflokkar auglýstir:
Sproti
Vöxtur
Markaðsþróun
Markaðssókn
Hagnýt rannsóknarverkefni
Styrkveiting til nýrra verkefna nemur samtals 803 milljónum króna. Þar sem verkefnin geta staðið yfir í allt að þrjú ár nemur heildarskuldbinding sjóðsins vegna þeirra 1.595 milljónum króna. Sjóðurinn er fjármagnaður af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.
Áður hafði verið tilkynnt um úthlutun úr styrktarflokknum Fræ.
Haft verður samband við verkefnisstjóra þeirra verkefna sem valin voru til styrkveitinga og þeir boðaðir til samningafundar.
Verkefnin sem valin voru til styrkveitinga endurspegla fjölbreytni íslenskrar nýsköpunar og ná meðal annars til heilbrigðistækni, gervigreindar, sjálfbærrar matvælaframleiðslu, orkuskipta, hugbúnaðarlausna, líftækni og umhverfistækni.
Vöxtur
Umsækjandi | Titill | Verkefnisstjóri |
10x Lausnir ehf. | Sjálfvirk hrognasprautunarvél fyrir eldislax | Adrian Freyr Rodriguez |
ALOR ehf. | Íslenskar orkugeymslur úr endurnýttum rafbílarafhlöðum | Linda Fanney Valgeirsdóttir |
Aquaculture Techonology Innovation ehf. | Sjónflokkun og talning fyrir heilsu- og lífmassastýringu eldisfiska | Þorvaldur Logi Pétursson |
Atlas Cloud ehf. | Öruggt ský sem tryggir stafrænt fullveldi fyrir viðkvæma innviði | Þórður Atlason |
ELVA Golf ehf. | Nákvæm greining á hreyfingu mannslíkamans og golfkylfunni með tölvusjón og gervigreind | Helgi Hjálmarsson |
Euneo Health ehf. | Stafrænt meðferðarumhverfi fyrir sjúkraþjálfun | Daníel Már Friðriksson |
LOVE Synthesizers ehf. | FIRST LOVE viðbætur og uppfærslur | Kári Halldórsson |
Nepsone ehf. | Nýtt lyf við meðferð á Psoriasis - Rannsókn á öryggi og verkun NS01 í mönnum | Svandís Kristjánsdóttir |
No.ID ehf. | no.ID - Aldursstaðfesting án eftirlits | Maciej Jacub Dudek |
SnerpaPower ehf. | SnerpaNexus | Auður Vésteinsdóttir |
Sweeply ehf. | Sjálfvirk gervigreind fyrir hótelrekstur | Frans Veigar Garðarsson |
Treble Technologies ehf. | Treble Lite | Guðlaug Sara Guðmundsdóttir |
Sproti
Umsækjandi | Titill | Verkefnisstjóri |
Alfa Kennsla ehf. | Alfa Kennsla - Betri kennsla, Meiri árangur | Sindri Freyr Jóhannsson |
Anime GenSys ehf. | Gervigreindar stuðningskerfi fyrir anime framleiðslu | Vicente Victor Carro Fernandez |
Arctic Applications ehf. | Bauja - Valkvæð vöktun skemmtibáta | Reynir Smári Atlason |
Bella Books ehf. | Bella Bókar - markaðshæf vara og þróun | Erla Símonardóttir |
Gerjun | Smáskala loftfirrt heitgerjunarkerfi | Sigurbjörn Már Aðalsteinsson |
Gleipnir Lífsmiðja ehf. | SKÍRNIR: Skimunarvettvangur til þróunar næstu kynslóðar lyfja | Guðjón Ólafsson |
Hvað nú ehf. | Fyrirhyggja - dánarumsýsla gerð einfaldari | Erna Niluka Njálsdóttir |
Ísponica ehf. | Samþætt varaaflslausn fyrir vökvatengda matvælaframleiðslu | Amber Christina Monroe |
Ístækni ehf. | Arctic Astaxanthin: Verðmætasköpun úr rækjuskel og smíði frumgerðar | Magnús Þór Bjarnason |
JKMG | SVAMP | Jonatan Van Hove |
KatlaCode ehf. | Gervigreindarstuðningur við útskrift sjúklinga fyrir lækna | Adeline Tracz |
NetRent | NetRent | Kristján Ævarsson |
Norðurþari ehf. | Öflun, verkun og lághitaþurrkun á stórþara úti fyrir Norðurlandi | Kristbjörg Bjarnadóttir |
OpCo - fasteignafélag ehf. | Tæknilausn fyrir sjálfvirka meðfjárfestingu í íbúðarhúsnæði | Helgi Már Þórðarson |
Spor ehf. | Græn kolsýruframleiðsla fyrir gróðurhús | Victoria Nyawira Nyaga |
Strandmark Medical ehf. | Samþætt kerfi fyrir snemmbæra blóðgjöf í bráðaþjónustu | Rasmus Erik Strandmark |
Vegvísir | Vegvísir | Ágúst Bjarki Ágústsson |
Visteyri ehf. | Framtíð fyrirtækja í hringrás | Elfa Rós Helgadóttir |
Markaðsþróun
Umsækjandi | Titill | Verkefnisstjóri |
Alinsa ehf. | Markaðsþróun sjálfvirkra álhæðarmælinga | Brynja Þorsteinsdóttir |
Álvit ehf. | Umhverfisvænn Kragasalli og varnarefni fyrir ál og kíslilver - Arftaki koltjörubiks | Sunna Ólafsdóttir Wallevik |
Kiso ehf. | Markaðsþróun KineMotion i BNA | Kjartan Björgvinsson |
Kæling ehf. | ICECO₂L Hydra á markað – Þróun markaðsinnviða fyrir vistvæna ískrapalausn | Eyjólfur Lárusson |
Minamo ehf. | BIOSIL-M | Vivien Nagy |
Víkonnekt ehf. | Markaðsþróun fyrir Treyst AI í Noregi | Safa Jemai |
Markaðssókn
Umsækjandi | Titill | Verkefnisstjóri |
Aquaculture Techonology Innovation ehf. | Markaðssókn fyrir nýja tölvusjónar og gervigreindarlausn fyrir sjálfbært landeldi. | Björg Ormslev Ásgeirsdóttir |
Aveo ehf. | Orion Driver - Markaðssókn í Evrópu | Ragnar Fjalar Sævarsson |
Hefring ehf. | Siglt í sókn á Kanadamarkað | Michael John Given |
Hoveringtrails ehf. | Svífandi stígakerfi og Fjallastígar | Birgir Þröstur Jóhannsson |
IceWind ehf. | IceWind til Kanada,Markaðssókn | Sæþór Ásgeirsson |
Hagnýt rannsóknaverkefni
Umsækjandi | Meðumsækjandi | Titill | Verkefnisstjóri |
Háskóli Íslands | Össur Iceland ehf. | Bætt viðbrögð gervifóta við hrösun hjá fólki með aflimun fyrir ofan hné, hönnun stýringar og prófanir. | Sigurður Brynjólfsson |
Tæknisetur ehf. | Arctus aluminum ehf. og Háskóli Íslands | Endingargóð Forskaut fyrir Kolefnislausa Álbræðslu Tækni - ALTEC | Kamaljeet Singh |
Háskóli Íslands | Ternaria Biosciences ehf. | Ensím og aðferðir til vinnslu mRNA | Eiríkur Steingrímsson |
Háskóli Íslands | Lyfjamörk fyrir meðhöndlun briskrabbameins og efnaskiptasjúkdóma | Margrét Helga Ögmundsdóttir | |
Háskóli Íslands | PUREV: Þróun á sértæku og skalanlegu skiljuferli fyrir framleiðslu á erfðabreyttum utanfrumubólum | Jens Guðmundur Hjörleifsson | |
Háskóli Íslands | Háskólinn í Reykjavík ehf. | Staðbundin meðferð við handaslitgigt | Bergþóra Sigríður Snorradóttir |
Tæknisetur ehf. | Eignarhaldsfélagið Hornsteinn ehf., Vegagerðin og Háskóli Íslands | Umhverfisvæn steypa til framtíðar | Gísli Guðmundsson |
Háskóli Íslands | Gleipnir Lífsmiðja ehf. | Þróun niðurbrotslyfja gegn MITF í sortuæxlum með stýrðri nálægð | Guðjón Ólafsson |