Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Forauglýsing: Styrkir til rannsóknaverkefna á sviði öldrunar

26. júní 2026

Heilbrigðisvísindasjóður heilbrigðisráðuneytisins mun í ágúst 2026 auglýsa eftir umsóknum um rannsóknastyrki á sviði öldrunar. Markmiðið er að efla rannsóknir sem auka þekkingu á öldrun og stuðla að framþróun á sviði heilbrigðisvísinda.

Heilbrigðisvísindasjóður er samkeppnissjóður sem heyrir undir heilbrigðisráðherra og hefur það hlutverk að efla rannsóknir í heilbrigðisvísindum, allt frá grunnvísindum til lýðheilsu- og klínískra rannsókna. Umsýsla sjóðsins er í höndum Rannís.

Stjórn sjóðsins leggur að þessu sinni sérstaka áherslu á rannsóknaverkefni á sviði öldrunar, í samræmi við áherslur heilbrigðisráðherra og stefnu stjórnvalda. Áætlað er að veita fimm eins árs rannsóknastyrki, að hámarki 20 milljónir króna hver.

Helstu upplýsingar:

  • Umsóknarkerfi opnar: Ágúst 2026

  • Umsóknarfrestur: 1. október 2026

  • Fjöldi styrkja: Allt að 5

  • Hámarksstyrkur: 20 milljónir króna til eins árs

Nánari upplýsingar um skilyrði, umsóknarferli og matsviðmið verða birtar þegar opnað verður fyrir umsóknir.

Fyrirspurnum má beina til sérfræðinga Heilbrigðisvísindasjóðs hjá Rannís á netfangið hvsjodur@rannis.is.