Fjölbreyttir styrkir í boði fyrir listafólk og menningarstofnanir í Evrópu
21. október 2026
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Culture Moves Europe, sem styður við ferðalög, samstarf og skapandi verkefni listafólks og fagfólks á sviði menningar í Evrópu. Einnig eru nokkrir aðrir áhugaverðir styrkir í boði á næstu vikum.

Ferðastyrkir fyrir listafólk og fagfólk í menningu
Culture Moves Europe býður einstaklingum og hópum upp á styrki til að ferðast á milli Evrópulanda í þeim tilgangi að þróa listræna starfsemi sína, efla samstarf, afla sér nýrrar þekkingar og byggja upp tengslanet.
Styrkirnir eru ætlaðir listafólki og fagfólki á sviði menningar sem er 18 ára eða eldra og búsett í þátttökulöndum Creative Europe.
Einstaklingar geta sótt um styrki til ferða sem vara í 7–60 daga, en hópar með allt að fimm þátttakendum geta sótt um ferðir sem vara í 7–21 dag.
Styrkirnir fela í sér 400 evra ferðastyrk og 85 evra dagpeninga. Viðbótarstuðningur getur einnig verið í boði, meðal annars vegna sérstakra aðstæðna þátttakenda.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2027, en umsóknir eru metnar mánaðarlega og því er hægt að sækja um á mismunandi tímum á umsóknartímabilinu.
Nánari upplýsingar um ferðastyrki Culture Moves Europe
Styrkir til gestavinnustofa og listamannadvalar (resedensíur)
Einnig hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki til gestavinnustofa og listamannadvalar (Residency Hosts) á vegum Culture Moves Europe.
Styrkirnir eru ætlaðir menningarstofnunum og öðrum aðilum sem vilja taka á móti listafólki og fagfólki frá þátttökulöndum Creative Europe. Hægt er að sækja um að taka á móti einum til fimm þátttakendum.
Verkefnin þurfa að uppfylla að minnsta kosti tvö af fimm markmiðum áætlunarinnar: að skapa, læra, kanna, tengjast og umbreyta. Með styrkjunum er lögð áhersla á alþjóðlegt samstarf, þekkingarmiðlun og ný tækifæri til listrænnar þróunar.
Umsóknarfrestur er til 18. janúar 2027.
Nánari upplýsingar um Culture Moves Europe
Fleiri styrkir og umsóknarfrestir á næstunni
Auk Culture Moves Europe eru fleiri tækifæri í boði fyrir listafólk, menningarstofnanir og aðra aðila í skapandi greinum:
Perform Europe 2026–2028 - Styður við nýjar og sjálfbærar leiðir til alþjóðlegs samstarfs og sýningarhalds í sviðslistum.
Umsóknarfrestur: 22. október 2026.Circulation of European Literary Works - Styrkir bókaútgefendur til þýðinga, útgáfu og dreifingar evrópskra bókmenntaverka.
Opnað fyrir umsóknir 21. október 2026.European Festivals Fund for Emerging Artists (EFFEA) - Styður við samstarf evrópskra listahátíða og veitir nýju og upprennandi listafólki tækifæri til að koma sér á framfæri á alþjóðavettvangi.
Umsóknarfrestur: 3. nóvember 2026.ZMINA: Resilience - Styður við samstarfsverkefni evrópskra menningaraðila með áherslu á samvinnu, nýsköpun og seiglu í menningargeiranum. Nánar um ZMINA.
Umsóknarfrestur: 4. desember 2026.
Listafólk, menningarstofnanir og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér þessi tækifæri og kanna hvaða styrkir henta þeirra verkefnum.