Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Ferðastyrkir vegna Hringborðs norðurslóða 2026 – fyrir umsækjendur frá Noregi

28. ágúst 2026

Nú er opið fyrir umsóknir um ferðastyrki til að sækja Hringborð norðurslóða (Arctic Circle Assembly) í Reykjavík dagana 8.–10. október 2026, sem og tengda viðburði í kringum ráðstefnuna.

Styrkirnir eru veittir á grundvelli Arctic Research and Studies (ARS), tvíhliða íslensk-norsku áætlunarinnar á sviði norðurslóðarannsókna.

Vefur Hringborðs norðurslóða (Arctic Circle Assembly)

Í boði eru fimm til sjö styrkir handa rannsakendum og sérfræðingum í málefnum norðurslóða sem tengjast norskri stofnun eða samtökum.

Hver styrkur dekkar þátttökugjald á ráðstefnunni, flug með almennu farrými fram og til baka milli Noregs og Íslands, og gistingu í Reykjavík, að hámarki 3.500 evrum. Styrkirnir eru greiddir út í einu lagi eftir ráðstefnuna gegn framvísun gagna um ferðalög og þátttöku.

Sækja um ferðastyrk

Styrkirnir eru veittir í samræmi við gr. 5.2 (Ferðastyrkir) í úthlutunarreglum Arctic Research and Studies áætlunarinnar fyrir tímabilið 2023–2026. Markmið þeirra er að hvetja til vísindalegs samstarfs háskóla og rannsóknarstofnana í Noregi og á Íslandi á sviði norðurslóðarvísinda.

  • Umsóknarfrestur er til 8. september 2026 kl. 14:00 að íslenskum tíma (kl. 16:00 að norskum tíma).

  • Umsækjendum verður tilkynnt um niðurstöður 11. september.

Nánari upplýsingar um styrkina veitir Eyjólfur Eyfells, starfsmaður Rannís, í netfangi eyjolfur.eyfells@rannis.is