Evrópusambandið auglýsir kallið "Posting of workers: enhancing administrative cooperation and access to information"
5. maí 2026
Kallið sem er innan innan ESF+ / EaSI áætlunarinnar er með umsóknarfrest 6. október klukkan 15:00 að íslenskum tíma (17:00 CEST)

Kallið styður fjölþjóðleg verkefni sem efla starfsemi stjórnsýslustofnana, bæta aðgengi að upplýsingum um erlent vinnuafl, og styrkja þekkingargrunn um réttindi, vinnuaðstæður og framkvæmd reglna um erlenda starfsmenn í Evrópu.
Til að mynda er hægt að sækja um stuðning við verkefni sem berjast gegn ólöglegri atvinnustarfsemi eins og félagslegum undirboðum og mansali.
Þau sem geta sótt um eru:
Opinberir aðilar (Public authorities)
Óhagnaðardrifin félög og félagasamtök (Non-profit organisations (private or public);
Frjáls félagasamtök ( Civil Society Organisations (CSOs))
Rannsóknarstofnanir (Research centres/institutes)
Háskólastofnanir (Higher Education Institutions (HEIs))
Alþjóðlegar stofnanir (Social partner organisations at European, national or regional level)
Umsækjendur geta sótt um styrki til verkefna á sviði samstarfs, upplýsingamiðlunar eða rannsókna.
Umsóknir skulu vera frá samstarfshópum að lágmarki þriggja aðila frá þremur mismunandi ESB/EES-ríkjum. Heildarfjárhæð kallsins er 4 milljónir evra og gert er ráð fyrir að styrkja 2-7 verkefni.
Umsóknarfrestur er 6. október 2026 kl. 17:00 (Brussel tími).