Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Evrópska samfjámögnunin á sviði sniðlækninga (European Partnership for Personlised Medicine) auglýsir annað kall áætlunarinnar

16. desember 2024

Yfirskrift kallsins er lyfjaerfðafræðileg nálgun á sniðlækningar (Pharmacogenomic Strategies for Personalised Medicine, EP PerMed JTC2025).

Rannís, fyrir hönd Íslands, tekur þátt í samfjármögnuninni, sem er að hluta til fjármögnuð af Evrópusambandinu.

Áætluninni um sniðlækningar er ætlað að leiða saman sérfæðinga og rannsóknateymi og auka þannig samkeppnishæfni Evrópu á sviði sniðlækninga.

Um er að ræða tveggja þrepa kall, þar sem fyrst er send inn forumsókn og svo full umsókn á öðru stigi.
Umsóknarfrestur á fyrra þrep er 18. febrúar 2025.

Nánari upplýsingar um kallið: Pharmacogenomic Strategies for Personalised Medicine

Upplýsingadagur verður haldinn 9. janúar 2025 - skráning á upplýsingadag

Áætluð tímalína EP PerMed JTC2025

9. janúar 2025

Upplýsingadagur

18. febrúar 2025

Umsóknarfrestur fyrir forumsóknir

17. júní 2025

Umsóknarfrestur fyrir fulla umsókn

Október 2025

Úthlutun tilkynnt

Lok árs 2025/byrjun árs 2026

Verkefni hefjast