Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

ECCC opnar nýtt styrkjakall í Digital Europe

4. september 2026

Þann 1. september opnaði Evrópska netöryggishæfnimiðstöðin (ECCC) fyrir umsóknir á ný styrkjaköll undir Digital Europe Programme (DEP), með allt að 96 milljóna evra heildarfjármagni.

Styrkjaköllin miða að því að efla netöryggistækni, getu og viðbúnað í Evrópu. Köllin einblína á helstu áherslur á sviði innleiðingar netöryggis og nær til eftirfarandi efnisþátta:

Netöryggistól, tækni og þjónusta sem byggja á gervigreind

CYBER-11-CYBERAI – 15 milljónir evra

Þessi aðgerð tekur til gervigreindartækni, þar á meðal skapandi gervigreindar, fyrir yfirvöld, netöryggismiðstöðvar (National and Cross-Border Cyber Hubs), CSIRT-teymi, opinbera aðila, aðila sem falla undir NIS 2 og aðra viðeigandi hagsmunaaðila. Stuðningurinn nær til þróunar og innleiðingar gervigreindarlausna, verkfæra og þjónustu á sviði netöryggis, meðal annars til að greina ógnir og veikleika, draga úr áhrifum ógna, bregðast við og ná jafnvægi eftir netöryggisatvik, greina gögn og deila þeim. Jafnframt er lögð áhersla á netöryggi, seiglu og áreiðanleika gervigreindarlausna.

Efling netöryggisgetu evrópskra lítilla og meðalstórra fyrirtækja með netöryggislausnum sem nýta gervigreind

CYBER-11-AI4SME – 20 milljónir evra

Með því að stuðla að upptöku og útbreiðslu nýstárlegra netöryggislausna sem nýta gervigreind stuðlar þessi aðgerð að aukinni seiglu lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Evrópu gagnvart netöryggisógnum. Styrkurinn styður þróun og innleiðingu gervigreindarlausna, verkfæra og þjónustu fyrir evrópsk lítil og meðalstór fyrirtæki, þar á meðal notendavæn verkfæri fyrir áhættustýringu, ógnagreiningu, viðbrögð við atvikum og tilkynningar.

Samræmd prófun á viðbúnaði og aðrar viðbúnaðaraðgerðir

CYBER-11-COORDPREP – 15 milljónir evra

Þessi aðgerð nær til tveggja þátta úr Cyber Solidarity Act (CSA) sem tengjast neyðarviðbragðskerfi fyrir netöryggi (Cybersecurity Emergency Mechanism): annars vegar samræmdra viðbúnaðarprófana hjá aðilum sem starfa í mikilvægum geirum/innviðum innan Evrópu og hins vegar annarra viðbúnaðaraðgerða fyrir aðila sem starfa í mikilvægum geirum/innviðum. Stuðningurinn nær meðal annars til innbrotsprófana (penetration testing), greininga á ógnum, veikleikavöktunar, áhættuvöktunar, samræmdrar tilkynningar um veikleika, æfinga og fræðslunámskeiða.

Svæðisbundnar kapalmiðstöðvar

CYBER-11-REGCABH – 5 milljónir evra

Aukin seigla og öryggi sæstrengjainnviða Evrópu eru kjarninn í stigvaxandi uppbyggingu svæðisbundinna kapalmiðstöðva (Regional Cable Hubs), einnar á hverju hafsvæði ESB. Framtakið styður uppbyggingu ferla, verkfæra og þjónustu til að greina og meta nýjar ógnir, tryggja nánast rauntíma stöðuvitund, tilkynningar um atvik og miðlun upplýsinga milli viðeigandi innlendra yfirvalda.

Efling NCC-netsins

CYBER-11-NCC – 11 milljónir evra

Starfsemi innlendra samhæfingarmiðstöðva (National Coordination Centres, NCCs) verður efld til að þær geti veitt netöryggissamfélaginu, þar á meðal litlum og meðalstórum fyrirtækjum, aukinn stuðning við innleiðingu og útbreiðslu háþróaðra netöryggislausna og eflingu netöryggisgetu. Framtakið styður jafnframt starfsemi netöryggishæfnissamfélagsins (Cybersecurity Competence Community), stuðlar að aukinni vitund um netöryggi og öruggari stafrænni hegðun, eflir færni á sviði netöryggis og stuðlar að vexti sprotafyrirtækja, lítilla og meðalstórra fyrirtækja og nýstárlegra netöryggislausna.

Efling netöryggisgetu ESB í samræmi við lagakröfur

CYBER-11-EULEG – 20 milljónir evra

Þessi aðgerð styður evrópska vistkerfið við að efla netöryggisgetu sína og innleiða regluverk í samræmi við Cyber Resilience Act, NIS2-tilskipunina, GDPR, DORA, Cybersecurity Act, sérstakar kröfur AI Act og aðra tilheyrandi löggjöf ESB um netöryggi. Stuðningurinn hjálpar hagsmunaaðilum að takast á við nýjar ábyrgðir og skyldur sem fylgja netöryggislöggjöf ESB, meðal annars með fjárhagslegum og skipulagslegum stuðningi eftir því sem við á.

Tækni sem nýtist í borgaralegum og hernaðarlegum tilgangi

CYBER-11-DUALUSE – 10 milljónir evra

Markmið þessarar aðgerðar er að efla samstarf á milli borgaralegs geira og varnargeirans með þróun frumgerða tvínota tækni (dual-use) sem eru tilbúnar fyrir markað, markaðstilbúinna vara og rekstrarinnviða á sviði netöryggistækni, lausna og verkfæra sem geta nýst bæði í borgaralegu samhengi og varnarsamhengi.