Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Creative Europe auglýsir styrki til Evrópskra samstarfsverkefna 2026

6. mars 2026

Um 150 verkefni verða styrkt á evrópska vísu og er umsóknarfrestur 5. maí 2026.

Styrkir eru veittir til alls kyns verkefna á öllum sviðum lista og menningar. Verkefnum er ætlað að auka samstarf yfir landamæri – koma á framfæri evrópskri menningu og kynna listafólk á Evrópuvísu þar sem ýtt er undir nýsköpun og nýja nálgun. Fjárframlag 2026 er um 60 milljónir evra.

Fyrir hverja?

Evrópsk samstarfsverkefni eru opin fyrir öll svið menningar og lista að undanskildum kvikmynda- og margmiðlunargeiranum þar sem Creative Europe MEDIA styrkir tilheyra honum. Umsækjendur þurfa að vera lögaðilar.

Tvenns konar styrkir verða í boði:

  1. Verkefni í minnst þriggja landa samstarfi geta sótt um allt að 200.000 evrur (80% styrkur, small scale)
    Lesa meira og sækja um (minnst þriggja landa samstarfs)

  2. Verkefni í minnst fimm landa samstarfi geta sótt um allt að 1.000.000 evrur (70%, medium scale)
    Lesa meira og sækja um (minnst fimm landa samstarfs)

Rafrænn kynningarfundur

Þann 16. mars næstkomandi verður kynningarfundur um styrki til samstarfsverkefna. Skráning er opin til 13. mars! Hvetjum öll áhugasöm að sitja fundinn en Teams hlekkur verður sendur á skráða þátttakendur.

Skráning á kynningarfund

Hlekkur á styrkt verkefni með þátttöku Íslands