COST auglýsir 80 ný verkefni
2. júní 2026
Tilgangur COST verkefna er að byggja upp alþjóðleg samstarfsnet rannsókna og nýsköpunar. COST verkefni hafa oft leitt til áframhaldandi samstarfs á milli þátttakenda í styrkumsóknum í stærri verkefni í rannsóknaáætlunum ESB.

Þátttakendur í COST verkefnum skiptast á reynslu og niðurstöðum í gegnum fundi og ráðstefnur, vinnustofur og heimsóknir.
COST greiðir fyrir kostnað þátttakenda vegna ferða og ráðstefnuhalds í þessum verkefnum en greiðir ekki kostnað við rannsóknaverkefnin sjálf.
Þátttaka í COST verkefnum er opin öllu vísindafólki sem hafa sérþekkingu á því sviði sem verkefnið fjallar um, hvort sem um er að ræða doktorsnema eða reyndari vísindamenn úr bæði háskólum og einkageira. Einnig er COST opið litlum og meðalstórum fyrirtækjum (SME), opinberum stofnunum og öðrum viðeigandi samtökum eða hagsmunaaðilum.
Alls getur Ísland átt tvo fulltrúa í stjórnarnefnd fyrir hvert verkefni. Ósk eftir tilnefningu skal senda í formi umsóknar til Rannís.
Áhugasamir geta einnig skráð sig í vinnuhópa og er viðkomandi þá ekki formlegur fulltrúi Íslands. Skráning í vinnuhóp fer ekki í gegnum Rannís.
Hvert COST verkefni stendur yfir í fjögur ár og er hægt að gerast þátttakandi í COST verkefni hvenær sem er á þeim tíma.
Þann 16. júní stendur COST fyrir rafrænum upplýsingadegi um áætlunina
Nánari upplýsingar og sniðmát fyrir umsókn
Minnt er á að lokafrestur til að skila inn umsókn um nýtt COST verkefni (Open Call) er 31. júlí næstkomandi.