Bretland gengur aftur í Erasmus+
17. apríl 2026
Ný tækifæri fyrir samstarf milli Íslands og Bretlands á sviði menntunar, æskulýðsmála og íþrótta.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og bresk stjórnvöld hafa náð samkomulagi um að Bretland taki aftur þátt í Erasmus+ áætluninni frá árinu 2027 eftir að hafa staðið utan hennar í kjölfar útgöngunnar úr Evrópusambandinu.
Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi fagnar samkomulaginu og telur það marka mikilvægt skref í átt að aukinni fjölbreytni og gæðum í evrópsku samstarfi með skýrum ávinningi fyrir íslenskt mennta , æskulýðs og íþróttasamfélag.
Endurkoma Bretlands í Erasmus+ eru afar góðar fréttir fyrir Ísland og önnur þátttökulönd og skapar fjölmörg tækifæri til að stofna til nýrra tengsla eða endurvekja og efla fyrra samstarf. Bretland er einn mikilvægasti samstarfsaðili Íslands á sviði menntunar og æskulýðsmála og hefur um árabil verið vinsæll áfangastaður íslenskra þátttakenda í áætluninni. Á síðasta tímabili sem Bretar tóku þátt (2014–2020) var Bretland meðal helstu samstarfslanda Íslands og í hópi fimm vinsælustu landanna þegar horft er bæði til ferða frá Íslandi til Bretlands og öfugt. Á sviði háskólamenntunar skipaði Bretland annað sæti yfir vinsælustu áfangastaði þátttakenda frá Íslandi á eftir Danmörku.
Þátttaka Bretlands í Erasmus+ tekur gildi 1. janúar 2027, sama dag og Sviss gengur líka aftur til liðs við áætlunina. Hægt verður að styrkja samstarf við þessi lönd í verkefnum sem sótt er um til Landskrifstofunnar frá og með 2027.
Nánari upplýsingar: