Boð á opnunarráðstefnu menningaráætlunar Uppbyggingarsjóðs EES í Varsjá, Póllandi
5. mars 2026
Dagana 21.- 22. apríl næstkomandi býður Menningarráðuneyti Póllands til opnunarráðstefna menningarsviðs Uppbyggingarsjóðsins.

Verðandi þátttakendum frá lista, menningar- og menningararfssviði frá Noregi, Íslandi og Liechtenstein verður boðið til þátttöku ásamt pólskum verkefnisstjórum.
Athugið að umsóknarfrestur er 16. mars næstomandi.
Dagskrá
21. apríl – Menngaráætlun ýtt úr vör og áætlun kynnt.
22. apríl – Tengslaráðstefna og leiðsögn um samstarfsverkefni.
Sjóðurinn greiðir ferðir til Varsjár og uppihald í tvær nætur fyrir einn frá hverri stofnun. Stjórnendur velja úr umsækjendum og láta þátttakendur vita eigi síðar en lok mars. Íslenskir þátttakendur verða 12. Forgangs njóta starfsmenn samtaka, félaga og neta.