Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Auglýst eftir umsóknum um námsorlof kennara, námsráðgjafa og stjórnenda framhaldsskóla

17. ágúst 2026

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2027-2028.

Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar, náms- og starfsráðgjafar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla.

Umsóknir þurfa að berast Rannís eigi síðar en 7. október næstkomandi, kl. 15:00.

Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknakerfi Rannís.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vandlega reglur sjóðsins og algengar spurningar.

Nánari upplýsingar gefur Ingunn Helga Bjarnadóttir, sérfræðingur á mennta- og menningarsviði, með tölvupósti: namsorlof.framhaldsskola@rannis.is eða í síma 515 5881.