Ársskýrsla Rannís 2025 birt
14. apríl 2026
Ársskýrsla Rannís fyrir árið 2025 hefur verið birt á rafrænu formi. Í skýrslunni er farið yfir helstu verkefni, árangur og þróun í starfsemi stofnunarinnar á árinu.

Í skýrslunni er leitast við að gefa heildstætt yfirlit í máli og myndum yfir margþætta og umfangsmikla starfsemi stofnunarinnar og þau verkefni sem voru efst á baugi á árinu 2025. Má þar helst nefna fjölþætta starfsemi sviðanna og stóru samkeppnissjóðanna ásamt umsýslu minni sjóða og alþjóðlegra áætlana. Einnig skipuðu viðburðir og viðurkenningar stóran sess í starfsemi Rannís á árinu.

Í ávarpi Ágústar Hjartar Ingþórssonar, forstöðumanns Rannís, kemur meðal annars fram að heildarumfang allra sjóða og alþjóðlegra áætlana sem Rannís hefur umsýslu með var um 31 milljarður króna á árinu.
Heildarumfang allra sjóða og alþjóðlegra áætlana sem Rannís hefur umsýslu með var um 31 milljarður króna á árinu 2025. Það er samdráttur frá árinu áður sem skýrist af því að þriggja milljarða króna lækkun varð í endurgreiðslum á rannsókna- og þróunarkostnaði til fyrirtækja sem er stærsta einstaka úrræðið sem Rannís sér um.
Þá kemur fram í ávarpinu að alþjóðlegt samstarf hafi gengið vel á árinu og undirbúningur fyrir næsta tímabil samstarfsáætlana Evrópusambandsins sé hafinn en þar vekur athygli tillaga um stofnun nýs samkeppnishæfnissjóðs sem verður reistur á grunni 14 núgildandi áætlana, þar af sex sem Ísland á þegar aðild að en einnig er gert ráð fyrir að fjárveiting til Horizon Europe muni tvöfaldast að nafnverði frá yfirstandandi tímabili sem fæli í sér verulega hækkun á framlagi til Íslands..
Styrkveitingar eru alls ekki eini eða mikilvægasti ávinningurinn af þátttöku í alþjóðlegu samstarfi, heldur skiptir þar meira máli aðgengi að þekkingu, nýsköpun, mörkuðum og tengslanetum fyrir bæði einstaklinga, stofnanir og fyrirtæki. Þannig sýna nýlega uppfærðar tölur frá Eramus+ áætluninni að á tímabilinu 2014–2025 voru nærri 26.000 ferðir farnar frá Íslandi með stuðningi frá áætluninni en á sama tíma voru ríflega 50.000 ferðir farnar til Íslands.
Þá nefnir forstöðumaður að áhugaverðir tímar séu framundan í starfsemi Rannís og nefnir þar meðal annars lagafrumvarp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun en frumvarpið gerir ráð fyrir fækkun samkeppnissjóða og festir í sessi nafn stofnunarinnar sem Rannís og skerpir á hlutverki hennar sem þjónustumiðstöð fyrir þekkingarsamfélagið. Samhliða endurskoðun á lagalegum grunni mun stofnunin vinna eigin stefnumótun á árinu en stefnt er að því að ný stefna verði mótuð til ársins 2030.
Rannís hefur umsjón með 26 innlendum styrktarsjóðum og átta erlendum samstarfsáætlunum. Heildarfjöldi umsókna í innlendum sjóðum og erlendum áætlunum var rúmlega átta þúsund og rúmlega 31 milljarður var veittur til stuðnings við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu á Íslandi.
