Alþjóðleg eTwinning-vinnustofa um STEAM-menntun haldin í Reykjavík
16. september 2026
Um 40 kennarar frá Norðurlöndunum, Benelux-löndunum og Þýskalandi komu saman í Reykjavík dagana 9.-11. september á alþjóðlegri eTwinning-vinnustofu um STEAM-menntun, lykilhæfni og alþjóðlegt skólasamstarf.

Yfirskrift vinnustofunnar var STEAM Education and the Union of Skills og tóku 40 kennarar frá Norðurlöndunum, Benelux-löndunum og Þýskalandi þátt. Það var landskrifstofa eTwinning á Íslandi sem stóð fyrir vinnustofunni.
Markmið vinnustofunnar var að skapa vettvang fyrir kennara til að skiptast á reynslu, þróa nýjar hugmyndir og leggja grunn að framtíðarsamstarfi í gegnum eTwinning. Sérstök áhersla var lögð á STEAM-menntun, þróun lykilhæfni og nýsköpun í kennslu.
Á dagskránni voru erindi og vinnustofur frá ýmsum sérfræðingum. Meðal annars flutti STEM Iceland fyrirlestur um STEAM-menntun og þátttakendur sóttu fyrirlestur og vinnustofu hjá Hagstofu Íslands þar sem þeir kynntust leiðum til að nýta gögn og tölfræði í námi og kennslu.
Tengslamyndun var stór hluti af vinnustofunni og fengu þátttakendur tækifæri til að kynnast samstarfsfólki frá öðrum löndum, deila hugmyndum og þróa tillögur að nýjum eTwinning-verkefnum. Á þessum þremur dögum urðu til fjölmargar hugmyndir að alþjóðlegu samstarfi sem munu styrkja tengsl skóla víðs vegar um Evrópu.
Það er ánægjulegt að sjá ný verkefni og samstarf verða til hér á Íslandi fyrir tilstuðlan eTwinning og Erasmus+.