Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Allt að 50.000 evrur í styrk til íslenskra aðila sem vinna að öryggi í aðfangakeðju hugbúnaðar

7. október 2026

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í CodeSupply, nýju styrkjakalli á vegum hollensku NLnet-stofnunarinnar, sem er fjármagnað af Horizon Europe. Umsóknarfrestur er til og með 3. nóvember 2026.

CodeSupply, fyrsta opna kallið

Markmið CodeSupply er að styrkja öryggi í aðfangakeðju hugbúnaðar með betri lýsigögnum um hugbúnaðarpakka. Þar undir falla upplýsingar um uppruna, leyfismál, öryggisveikleika og gæði sem safnað er úr dreifðum gagnalindum þvert á forritunarvistkerfi. Verkefnið er hluti af áherslu Evrópusambandsins á Open Internet Stack, sem byggir á Next Generation Internet (NGI).

Styrkirnir eru ætlaðir einstaklingum, fyrirtækjum og samtökum sem vinna að opnum hugbúnaði og auknu öryggi fyrir aðfangakeðju hugbúnaðar. Hægt er að sækja um allt að 50.000 evrur fyrir hvert verkefni.

Dæmi um viðfangsefni sem falla undir kallið

  • Öryggi og stjórnun aðfangakeðju hugbúnaðar

  • Birting og umsjón lýsigagna um hugbúnað

  • Netöryggi og fylgni við regluverk

  • Fylgni við leyfisskilmála opins hugbúnaðar

  • Hjálpartól, notendaupplifun og samþætting við opinn hugbúnað og opna staðla

  • Endurbætur á lykilinnviðum

Helstu atriði

  • Styrkupphæð: 5.000–50.000 evrur á hvert verkefni. Heildarfjármagn í opnum köllum er 400.000 evrur.

  • Umsóknarfrestur: 3. nóvember 2026 kl. 12:00 CET (kl. 11:00 að íslenskum tíma).

  • Hverjir geta sótt um: Einstaklingar, þar á meðal sjálfstætt starfandi forritarar og rannsakendur, fyrirtæki, félagasamtök og aðrir lögaðilar. Umsækjendur frá ESB og löndum sem eiga aðild að Horizon Europe, þ.á m. Íslandi, njóta forgangs.

  • Skilyrði:

    • Rannsóknir og þróun skulu vera meginmarkmið verkefnisins.

    • Allan hug- og tölvubúnað þarf að birta í heild sinni undir viðurkenndu opnu leyfi.

    • Vísindalegar niðurstöður skulu birtar í opnum aðgangi.

  • Mat umsókna: Tæknileg gæði og raunhæfni (30%), mikilvægi og áhrif (40%) og hagkvæmni (30%).
    Umsóknir þurfa að ná að lágmarki 5,0 af 7,0 til að komast á annað matsstig.

Áhugasöm eru hvött til að kynna sér leiðbeiningar fyrir umsækjendur, hæfisskilyrði og algengar spurningar og undirbúa umsóknir tímanlega.

Nánari upplýsingar veitir Rannís: ncc@rannis.is / 515 5800.