Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Allt að 200.000 evrur í boði til íslenskra aðila í netöryggi

20. febrúar 2026

Tvö spennandi netöryggisköll innan Digital Europe áætlunarinnar (e. cascade funding / FSTP) eru nú auglýst og geta átt vel við íslensk netöryggisfyrirtæki, rannsóknarhópa og aðila í opinbera geiranum. Um er að ræða styrki að hámarki 200.000 evrur á verkefni með umsóknarfresti í mars og apríl 2026.

CYSSDE – Open Call 3 (Penetration Testing & Vulnerability Assessments)

Þetta þriðja kall beinist að innbrotsprófunum og veikleikagreiningum (e. penetration testing og vulnerability assessments).

  • Styrkupphæð: Allt að 200.000 evrur á hverja tillögu með 50% mótframlagi. Verkefni þarf því að lágmarki að kosta 400.000 evrur til að fá fullt 200.000 evra framlag.

  • Opnun umsókna: 27. febrúar 2026 kl. 09:00 (10:00 CET)

  • Umsóknarfrestur: 28. apríl 2026 kl. 14:00 (15:00 CET)

  • Umsækjendur: Einn aðili eða samstarf (hámark tveir samstarfsaðilar). Hæfir umsækjendur eru lítil og meðalstór fyrirtæki (SME), miðstór fyrirtæki (mid-caps), stór fyrirtæki, rannsóknasetur og opinberir aðilar.

CYberSynchrony – Open Calls 1–3 CYberSynchrony

Einn umsóknargluggi er fyrir köll 1-3

  • Styrkupphæð: Allt að 200.000 evrur á hvert verkefni (hámark 200.000 evrur á hvern þátttakanda samtals yfir öll köll).

  • Umsóknarfrestur: 1. mars 2026 kl. 16:00 (17:00CET). Umsókn er tiltölulega stutt, 10 blaðsíður eða minna.

  • Umsækjendur:

    • Lítil og meðalstór fyrirtæki (SME) geta sótt um ein og sér (sóló).

    • Í samstarfsverkefnum (hámark 2–3 samstarfsaðilar) þarf SME að vera umsjónaraðili (coordinator).

    • Kall 3 er eingöngu ætlað samstarfsverkefnum og krefst umboðsbréfs frá samstarfsaðilum fyrir SME-leiðandi aðila.

Áhugasöm eru hvött til að kynna sér skilmála og undirbúa umsóknir tímanlega. Nánari upplýsingar um köllin og umsóknarferlið verða birtar á vef verkefnanna.