Allt að 100.000 evrur í boði í CASSINI Challenges nýsköpunarkeppninni
20. mars 2026
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í CASSINI Challenges, evrópska nýsköpunarkeppni sem styður þróun lausna byggðra á gögnum og þjónustu úr geimáætlun Evrópusambandsins (EU Space Programme). Keppnin er ætluð sprotum og fyrirtækjum sem þróa lausnir með markaðsmöguleika og rennur umsóknarfrestur út 26. mars 2026.

Markmið keppninnar er að bæði hvetja til nýsköpunar sem og nýtingu á geimtækni til að takast á við samfélagslegar, umhverfislegar og efnahagslegar áskoranir.
Umsóknarfrestur er 26. mars 2026.
Umsækjendur þurfa að leggja fram lausnir sem byggja á þjónustu og gögnum úr geimáætlun ESB, svo sem Copernicus (jarðathuganir), Galileo og EGNOS (gervihnattaleiðsögn), GOVSATCOM eða Space Surveillance and Tracking.
Við mat á umsóknum verður meðal annars litið til:
Tæknilegs styrks
Nýsköpunargildis
Markaðsmöguleika
Lausnir þurfa að vera á stigi frumgerðar (Minimum Viable Product), með skýra sýn á áframhaldandi þróun og markaðssetningu.
Alls fá 12 verkefni verðlaun og fær hvert þeirra 100.000 evrur til áframhaldandi þróunar. Markmiðið með því að veita færri verkefnum hærri styrki er að auka líkur á að lausnirnar nái árangri á markaði.
Keppnin er opin þátttakendum frá aðildarríkjum Evrópusambandsins og tengdum ríkjum (associated Countries). Ísland telst sem tengt ríki í gegnum EES samninginn.
CASSINI Challenges eru hluti af CASSINI-frumkvæði framkvæmdastjórnar ESB sem styður við frumkvöðla, sprotafyrirtæki og lítil og meðalstór fyrirtæki í þróun nýrra lausna sem byggja á geimtækni. Cassini áætlunin heyrir undir Horizon Europe, einkum Cluster 4 – Digital, Industry and Space.
Áhugasöm eru hvött til að kynna sér skilmála og undirbúa umsóknir tímanlega. Nánari upplýsingar um keppnina og umsóknarferlið má finna á vef CASSINI Challenges.