Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

1,7 milljörðum úthlutað í Erasmus+ og European Solidarity Corps það sem af er ári

13. maí 2026

Aldrei hafa fleiri ferðir til náms og þjálfunar verið styrktar í Erasmus+. Metnaður, nýliðun og góð landfræðileg dreifing einkenna fyrstu umsóknarlotu ársins.

Flestir umsóknarfrestir ársins í Erasmus+ og European Solidarity Corps (ESC) eru á fyrstu mánuðum ársins. Nú hefur Landskrifstofa lokið við afgreiðslu umsókna um nám og þjálfun í Erasmus+ og um sjálfboðaliðaverkefni og samfélagsverkefni í ESC sem bárust í febrúar og hafa vafalaust margir umsækjendur glaðst við að fá jákvæð svarbréf nú í maí. Niðurstöðurnar sýna vel mikinn áhuga á þátttöku í áætlununum og vaxandi metnað íslenskra stofnana og félagasamtaka til alþjóðlegs samstarfs.

Í umsóknarfrestinum voru slegin fjölmörg met, bæði hvað varðar fjölda umsókna og umfang styrktra verkefna. Þessi þróun endurspeglar aukna vitund um gildi alþjóðlegrar reynslu og skýran vilja til að tryggja sem flestum tækifæri til að efla þekkingu, hæfni og alþjóðlega tengslamyndun með þátttöku í Erasmus+ og ESC.

Virk alþjóðleg þátttaka í æskulýðs- og íþróttastarfi

Í æskulýðshluta Erasmus+ hefur aðildarformið fest sig í sessi. Sífellt fleiri umsækjendur nýta sér möguleikann á að byggja upp kerfisbundið alþjóðastarf og -stefnu með Erasmus+ aðild, sem einfaldar aðgengi að fjármagni og eykur fyrirsjáanleika meðal styrkhafa. Samtals hlutu 17 umsækjendur með aðild styrki að upphæð 1,8 milljónir evra. Einnig voru átta önnur verkefni styrkt, þar af tvö ungmennaskiptaverkefni og sex þátttökuverkefni.

Í íþróttahluta Erasmus+ hlutu fjórar umsóknir styrk, sem samtals nema tæplega 30 þúsund evrum. Þá úthlutaði Landskrifstofan rúmlega 683 þúsund evrum til sjö íslenskra félagasamtaka, sem gerir þeim kleift að taka á móti sjálfboðaliðum í gegnum ESC. Auk þess voru tvö samfélagsverkefni styrkt en umsóknarfrestir í þeim flokki eru þrír á ári.

Mikill vöxtur í menntun og þjálfun á öllum skólastigum

Í fullorðinsfræðslu heldur eftirspurn eftir Erasmus+ styrkjum áfram að aukast, líkt og í öðrum hlutum áætlunarinnar. Veittir voru styrkir til 10 verkefna með Erasmus+ aðild og námu þeir samtals um 400 þúsund evrum, en úthlutun til aðildarstofnana byggir á reikniformúlu Evrópusambandsins. Þá hlutu fimm skammtímaverkefni styrki sem samtals námu um 155 þúsund evrum.

Í starfsmenntun bárust nær eingöngu umsóknir frá aðilum með aðild að Erasmus+. Alls hlutu 16 verkefni styrk og nam heildarúthlutun rúmum 2,7 milljónum evra. Þar að auki hlaut eitt skammtímaverkefni tæplega 34 þúsund evra styrk. Í skólahluta, sem nær yfir leik-, grunn- og framhaldsskólastig, barst metfjöldi umsókna frá upphafi áætlunarinnar, alls 57, þar af 52 frá umsækjendum með Erasmus+ aðild. Samtals runnu 1,6 milljónir evra til aðildarstofnana. Að auki hlutu fimm skammtímaverkefni styrki fyrir um 138 þúsund evra.

Íslenskir háskólar í sókn innan og utan Evrópu

Í háskólahluta Erasmus+ voru einnig slegin met og hafa íslenskir háskólar aldrei sótt um að styrkja jafnmarga nemendur til skiptináms og starfsþjálfunar erlendis. Með úthlutun upp á um 3,7 milljónir evra ættu þeir að geta fjármagnað ferðir 1500 þátttakenda – nemenda og starfsfólks - á samningstímabilinu auk blandaðra hraðnámskeiða fyrir 450 þátttakendur.

Jafnframt hefur eftirspurn eftir styrkjum til samstarfs við lönd utan Evrópu í alþjóðavídd Erasmus+ aldrei verið jafn öflug og samkeppnin mikil. Veittir styrkir námu 574 þúsund evrum og einn þriðji fjármagnsins fór í samstarf við Afríkuríki sunnan Sahara.

Starfsfólk Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi óskar öllum styrkhöfum innilega til hamingju með árangurinn. Gert er ráð fyrir að samningar verði sendir út síðar í maí til rafrænnar undirritunar og hlakkar Landskrifstofan til farsæls samstarfs við styrkhafa á komandi misserum.

Nánar um úthlutun ársins