1,4 milljónir evra til alþjóðlegs samstarfs í sviðslistum
8. október 2026
Perform Europe hefur opnað fyrir umsóknir til samstarfsverkefna í sviðslistum. Markmiðið er að finna leiðir til að gera samstarf og ferðalög sviðslistafólks yfir landamæri sanngjarnari, umhverfisvænni og meira inngildandi.

Markmiðið er að hópur sviðslistafólks eða samtök frá ólíkum löndum vinni saman að verkefni þar sem reynt er að finna nýjar lausnir eða leiðir.
Skilyrði
Verkefnið þarf að leggja megináherslu á annað af tveimur sviðum:
Inngildingu og fjölbreytni, til dæmis hvernig hægt sé að gera sviðslistir aðgengilegri og tryggja fjölbreyttari þátttöku.
Loftslagsmál, til dæmis hvernig hægt sé að draga úr umhverfisáhrifum alþjóðlegs samstarfs og ferðalaga.
Jafnframt þarf að taka tillit til hins áherslusviðsins. Verkefni sem leggur áherslu á loftslagsmál þarf því einnig að huga að inngildingu og fjölbreytni og öfugt.
Umsókn þarf að vera unnin í samstarfi allt að þriggja aðila frá að minnsta kosti þremur löndum sem taka þátt í Creative Europe. Samstarfsaðilarnir vinna sameiginlega að verkefninu og umsókninni.
Hver umsókn þarf að fela í sér að minnsta kosti eitt fullgert sviðslistaverk sem verður kynnt í að minnsta kosti þremur Creative Europe löndum. Undir sviðslistir falla meðal annars leikhús, dans, gjörningar, sirkus, útisviðslistir, brúðuleikhús og þverfagleg sviðslistaverk.
Ekki er hægt að sækja um styrk til framleiðslu á nýju listaverki. Verkið þarf að vera fullgert eða listræn hugmynd komin á það stig að hægt sé að aðlaga hana og kynna í ólíkum samhengi.
Hver geta sótt um?
Samtök, stofnanir og fagfólk sem starfa á sviði sviðslista og eru löglega skráð í einu af 41 Creative Europe-ríki. Undir sviðslistir falla meðal annars leikhús, dans, gjörningar, sirkus, útisviðslistir, brúðuleikhús og þverfagleg sviðslistaverk.
Styrkupphæðir
Alls eru 1,4 milljónir evra til úthlutunar og er stefnt að því að styrkja að minnsta kosti 25 samstarfsverkefni.
Hægt er að sækja um:
15.000 evrur
25.000 evrur
55.000 evrur
Auk þess er hægt að sækja um allt að 5.000 evrur í viðbótarstyrki vegna aðgengis og sjálfbærni.
Hámarksstyrkur á verkefni er 60.000 evrur.
Fimm prósent af heildarfjárveitingunni verða sérstaklega nýtt í verkefni sem fela í sér samstarf við úkraínska aðila eða styðja við sviðslistageirann í Úkraínu.
Hver stendur að styrknum?
Perform Europe er evrópskt styrkjaúrræði, Evrópusambandið er styrkveitandi og fjármögnunaraðili úthlutunarinnar.
Umsóknarfrestur er til 22. október 2026 kl. 23:59 (CEST).
Nánari upplýsingar má finna hér: Perform Europe – Open Call 2026–2028
Hægt er að leita að samstarfsaðilum í gegnum Matchmaking-vettvang Perform Europe: Perform Europe – Matchmaking Platform