Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Yfirmönnum fækkar verulega

27. nóvember 2012

Frá árinu 2007 til ársins 2012 hefur yfirmönnum hjá embætti ríkislögreglustjóra fækkað um 40%. Árið 2007 störfuðu tveir aðstoðarríkislögreglustjórar, þrír yfirlögregluþjónar og 10 aðtoðaryfirlögregluþjónar. Árið 2008 hurfu báðir aðstoðarríkislögreglustjórarnir til annarra starfa en ekki var ráðið í stöður þeirra. Þá hefur yfirlögregluþjónum og aðstoðaryfirlögregluþjónum einnig fækkað um fjóra á þessu árabili miðað við næstu áramót.

Frá árinu 2007 til ársins 2012 hefur samanlagður niðurskurður fjárveitinga til embættis ríkislögreglustjóra numið um 33%. Þrátt fyrir þetta hefur reynst unnt að reka embættið innan fjárheimilda. Ráðist var í endurskipulagningu og tilfærslur verkefna og fækkun yfirmanna. Heildarfækkun starfsmanna nemur um 15%, en fækkunin er mest í hópi yfirmanna.

Ríkislögreglustjóri hefur lagt áherslu á að forgangsraða niðurskurði þannig að hann skerði sem minnst þjónustu við almenning og því hefur sú leið verið farin að fækka yfirmönnum en ekki almennum lögreglumönnum.