Vitni óskast
11. ágúst 2026
Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum að líkamsárás er átti sér stað á Brekastíg um kl. 19:30, laugardaginn 1. ágúst s.l. Þar var brotaþoli sleginn hnefahöggi í höfuðið af óþekktum aðila sem svo fór í burtu. Brotaþoli var fluttur af vettvangi í sjúkrabifreið. Þau sem urðu vitni að líkamsárásinni eða hafa einhverjar upplýsingar um hana eru beðin að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í síma 444 2090 eða senda tölvupóst á netfangið vestmannaeyjar@logreglan.is.

Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum að líkamsárás er átti sér stað á Brekastíg um kl. 19:30, laugardaginn 1. ágúst s.l. Þar var brotaþoli sleginn hnefahöggi í höfuðið af óþekktum aðila sem svo fór í burtu. Brotaþoli var fluttur af vettvangi í sjúkrabifreið.
Þau sem urðu vitni að líkamsárásinni eða hafa einhverjar upplýsingar um hana eru beðin að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í síma 444 2090 eða senda tölvupóst á netfangið vestmannaeyjar@logreglan.is.