Vinnuslys í Korngörðum í Reykjavík
20. mars 2026
Vinnuslys varð í Reykjavík í morgun þegar þar varð sprenging í húsi í Korngörðum, en tilkynning um málið barst lögreglu rétt fyrir klukkan hálfátta. Viðbragðsaðilar héldu strax á vettvang, en ljóst er að um alvarlegan atburð er að ræða. Það eru eindregin tilmæli frá lögreglu að fólk haldi sig fjarri staðnum, bæði til að trufla ekki störf viðbragðsaðila og eins til að tryggja greiða aðkomu þeirra til og frá vettvangi.
